ESA: Útgjöld vegna ríkisaðstoðar hækka á Íslandi en lækka í Noregi Atli ísleifsson skrifar 30. mars 2016 14:41 Ísland jók útgjöld sín til ríkisaðstoðar árið 2014, einkum vegna aukinnar aðstoðar við rannsóknir, þróun, nýsköpun og menningarmál.
Útgjöld Íslands og Liechtenstein vegna ríkisaðstoðar hækkuðu á árinu 2014 en lækkuðu lítillega í Noregi. Þetta kemur fram í nýrri samanburðarskýrslu Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA sem birt var í dag. Í skýrslunni segir að heildarútgjöld EFTA-ríkjanna hafi farið lækkandi líkt og undanfarin ár. „Stærsti hluti aðstoðar var til byggðaþróunar, en á eftir fylgdi aðstoð til umhverfisverndar og orkusparnaðar. Sáralítil aðstoð var bundin einstökum atvinnugreinum.“ Ríkisaðstoð er aðstoð sem hið opinbera veitir atvinnulífinu og er hún veitt með ýmsum hætti. Samanburðarskýrsla ESA er birt árlega og sýnir þróun ríkisaðstoðar í EFTA-ríkjunum sem og almennt á Evrópska efnahagssvæðinu. Í skýrslunni segir að Ísland hafi aukið útgjöld sín til ríkisaðstoðar árið 2014, einkum vegna aukinnar aðstoðar við rannsóknir, þróun, nýsköpun og menningarmál. „Ísland samþykkti auk þess árið 2014 ríkisaðstoðarkerfi sem fellur undir almenna hópundanþágu. Hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu er fremur lágt á Íslandi samanborið við ríki Evrópusambandsins og er talsvert undir meðaltali ESB-ríkja. Noregur dró úr aðstoð til rannsókna, þróunar og nýsköpunar sem og til byggðaþróunar árið 2014. Heildarútgjöld Noregs til ríkisaðstoðar lækkuðu þannig þrátt fyrir aukna aðstoð til umhverfisverndar og orkusparnaðar. Stærsti hluti ríkisaðstoðar í Noregi fór til byggðaþróunar og umhverfismála. Hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu Noregs var örlítið yfir meðaltali ESB-ríkja. Noregur notaði hópundanþáguna í vaxandi mæli og nam hlutfall slíkrar aðstoðar 29% af heildaraðstoð á árinu 2014. Árið 2014 veitti Liechtenstein aðstoð til verkefna á sviði menningar og þjóðararfs auk þess að veita í fyrsta sinn aðstoð til orkusparnaðar. Því jukust útgjöld til ríkisaðstoðar í samanburði við fyrri ár. Hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu var þó áfram lægst allra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu.“
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira