Fyrir framan annað fólk
Leikstjórn: Óskar Jónasson
Aðalleikarar: Snorri Engilbertsson, Hafdís Helga Helgadóttir, Hilmir Snær Guðnason, Pálmi Gestsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórir Sæmundsson
Handrit: Óskar Jónasson, Kristján Þórður Hrafnsson
Framleiðendur: Kristinn Þórðarson, Leifur B. Dagfinnsson, Helga M. Reykdal
Myndataka: Bergsteinn Björgúlfsson
Klipping: Valdís Óskarsdóttir og Sigurður Eyþórsson
Tónlist: Atli Örvarsson
Leikmynd: Sveinn Viðar Hjartarson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Fyrir framan annað fólk er fyrsta gamanmynd Óskars Jónassonar í fullri lengd í næstum tvo áratugi, eða síðan Perlur og svín kom út árið 1997. Hann hefur þó fengist við grín í sjónvarpi síðan þá en síðustu tvær bíómyndir hans voru af allt öðrum toga en þær fyrstu tvær.
Hérna er hann þó á aðeins öðrum slóðum en í fyrstu tveimur myndum sínum og mætti e.t.v. lýsa Fyrir framan annað fólk sem örlítið Woody Allen-legri rómantískri gamanmynd. Hún segir frá hlédræga auglýsingateiknaranum Húberti sem tekst að heilla stúlku að nafni Hönnu með því að herma eftir yfirmanni sínum og forseta Íslands. Húbert byrjar að stunda þessir eftirhermur af fullum krafti en á endanum hættir hann að ráða við þetta og byrjar að herma eftir fólki ósjálfrátt. Þetta hefur áhrif á samband hans við Hönnu og Húbert þarf að gera eitthvað í málunum.
Hugmyndin á bak við myndina er í senn einföld og óvenjuleg. Á vissan hátt er þetta ósköp venjuleg rómantísk gamanmynd, en með ákveðnu „twisti“ sem gefur henni áhugaverðan blæ. Myndir af einmitt þessu tagi hafa í raun lítið sést á Íslandi hingað til. Fyrir utan rómantíkina ganga svona myndir yfirleitt út á að skapa skemmtilegar en um leið vandræðalegar aðstæður, áhugaverða og litríka karaktera og heimspekilegar vangaveltur. Nóg er af því hér.

Tveir leikarar skara þó mest fram úr, þeir Hilmir Snær Guðnason sem yfirmaður Húberts og Pálmi Gestsson sem faðir Hönnu.
Hilmir Snær er eins og fæddur til að leika karakterinn sem er hálfgerður drullusokkur sem maður getur samt ekki annað en elskað. Ást hans á Ítalíu og ítalskri menningu er skemmtilegur eiginleiki í þessum karakter og Ítalía er hálfgert þema í myndinni allri þar sem ítölsk dægurlög koma mikið við sögu í henni.
Pálmi Gestsson er litlu síðri en Hilmir og hefur í raun sjaldan verið skemmtilegri. Hann leikur týpu sem margir kannast við, óvirkan alkóhólista sem talar alltaf um sig í þriðju persónu og finnst Bubbi Morthens vera svalasti maður á Íslandi.
Ef það er eitthvað sem má setja út á myndina þá er það kannski að þróunin í sögunni upphaflega er pínu klunnaleg, persónur segja hver annarri beint út að gera hluti sem hefði alveg mátt gera á sjónrænan máta. Einnig er vert að benda á að karlpersónurnar í myndinni virka yfir höfuð dýpri en kvenpersónurnar, karlarnir eru í það minnsta mun meira áberandi og fá meira að gera. Húbert hefur t.d. aðeins meiri persónuleika en Hanna og faðir Hönnu er mjög eftirminnilegur á meðan móðir hennar er í raun bara dæmigerð eldri kona. Atli Sigurjónsson
Niðurstaða: Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem tekur gamlar hugmyndir og setur þær í ferskan búning. Myndin er vel leikin, fagmannlega gerð en umfram allt mjög fyndin.