Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - Haukar 17-28 | Haukarnir komnir með sex stiga forystu á toppnum Ólafur Haukur Tómasson á Akureyri skrifar 3. mars 2016 21:30 Adam Haukur Baumruk. Vísir/Vilhelm
Haukar unnu enn einn stórsigurinn á Akureyri í vetur þegar þeir leituðu að snúa við blaðinu frá því síðastliðinn föstudag þegar liðið tapaði í bikarúrslitum gegn Val. Leikurinn endaði 17-28 fyrir Hauka . Jafnræði var með liðunum lengi framan af leiknum og var það að miklu leiti þeim Tomas Olasyni og Giedriius Morkunas, markvörðum liðana, að þakka en þeir vörðu báðir mörg skot í fyrri hálfleik. Það var ekki fyrr en í kringum 25.mínútu sem Haukar fóru að sigla fram úr Akureyringum og voru með fimm marka forskot í hálfleik, 6-11. Akureyringar náðu að halda sér inn í leiknum og virtust ætla að færast nær gestunum en ekki leið að löngu þar til Haukar gáfu í aftur. Leiknum lauk eins og áður segir með ellefu marka sigri Hauka og sitja þeir enn í toppsæti Olís deildar karla. Tomas Olason varði tuttugu skot fyrir Akureyri en Halldór Logi Árnason var markahæstur heimamanna með fimm mörk. Hjá Haukum var Janus Daði Smárason, Brynjólfur Snær Brynjólfsson og Hákon Daði Styrmisson allir með fimm mörk en Giedrius Morkunas varði 21 skot og Grétar Ari Guðjónsson varði sjö. Andri Snær: Sóknin varð okkur að falli „Við erum alltof fljótir að gefa eftir. Við erum í basil sóknarlega nær allan leikinn en Haukarnir eru það gott lið að við getum ekki verið að klikka svona mikið af dauðafærum eins og í dag. Við skjótum mjög illa úr góðum færum og þeir eru fljótir að refsa,” sagði Andri Snær Stefánsson, fyrirliði Akureyrar eftir enn eitt stór tapið gegn Haukum í vetur. Þrátt fyrir stórt tap þá leit Andri á björtu hliðarnar hjá sínum mönnum og taldi lið sitt hafa spilað góða vörn og markvarslan var fín en það voru vandamál á hinum vallarhelmingnum sem kostuðu þá mikið. „Við stjórnuðum hraða leiksins vel fyrstu 25 mínúturnar og góð byrjun hjá okkur. Góð vörn og góð markvarsla en það var aðallega nýting á dauðafærum og erfið sókn sem varð okkur að falli,” Gunnar Magnússon: Þeir fengu okkur á mjög slæmum tíma! Það leyndi sér ekki að tapið í bikarúrslitunum gegn Val um síðastliðna helgi situr í Gunnari og leikmönnum hans hjá Haukum. Hann var sáttur með viðbrögð sinna manna eftir vonbrigðin og taldi Akureyringa óheppna að hafa þurft að mæta liðinu á þessum tímapunkti. „Við gátum ekki beðið eftir að komast á gólfið eftir síðasta föstudag. Akureyringum til varnar þá fá þeir okkur á mjög slæmum tíma hingað því við erum enn svekktir og óánægðir með sjálfa okkur síðan þá. Við vildum komast aftur á gólfið og svara fyrir þetta,” sagði Gunnar. Jafnræði var með liðunum lengi vel framan af leiknum en Haukar náðu að byggja upp forskot á síðustu mínútum fyrri hálfleiks. Gunnar taldi þó sína men hafa getað gert betur í fyrri hálfleik og gert út um leikinn fyrr en er mjög sáttur með seinni hálfleikinn. „Við erum með fimm tækileg klúður í hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik svo við hefðum nánast getað klárað þetta í hálfleik. Við mættum hrikalega grimmir til leiks og vorum mjög góðir í dag. Vörn og markvarsla var mjög góð í dag og sóknin lengi í gang. Sóknin var betri hjá okkur í seinni hálfleik. Heildarbragurinn á liðinu var bara mjög góður,” Haukar styrkja stöðu sína á toppnum og eru í ágætis málum eins og er. Gunnar er staðráðinn í að missa ekki af þessum titli. „Að sjálfsögðu ætlum við að klára þetta. Það er næsti leikur og önnur tvö stig, við þurfum fleiri stig og við ætlum að klára þetta,” sagði Gunnar.
Olís-deild karla Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Fótbolti „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Enski boltinn Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Enski boltinn Fleiri fréttir Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikarmeistarar ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Uppgjör: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár Viktor Gísli varði vel og skoraði líka í Meistaradeildinni Leik lokið: FH-Haukar 21-25 | Haukar í bikarúrslit eftir sigur á FH Elvar allt í öllu í útisigri í Íslendingslag „Hvar leikurinn er spilaður kemur mér í rauninni ekkert við“ „Þegar við erum góðar finnst mér við vera frábærar“ „Þetta var aldrei eitthvað sjálfgefið“ Sjá meira