Fjárlagafrumvarpi seinkar allavega fram í nóvember Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. september 2016 07:00 Óvíst er hvort það verður Bjarni eða annar sem leggur fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017. vísir/gva
Í gær samþykkti þingið bráðabirgðaákvæði við þingskaparlög þess efnis að nýtt haustþing komi ekki saman fyrr en að loknum kosningum. Ákvæðið hefur í för með sér að fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017 verður ekki lagt fram fyrr en í fyrsta lagi í nóvember. Í dag er liðið ár og dagur frá því fjárlagafrumvarp fyrir árið 2016 var lagt fram. Í lögum um opinber fjármál segir að ráðherra skuli leggja fram fjárlagafrumvarp á fyrsta fundi haustþings. Undir venjulegum kringumstæðum væri stutt í frumvarpið fyrir árið 2017 eða það nú þegar komið fram. Framlagningarstund fjárlagafrumvarpsins ræðst síðan af því hvernig stjórnarmyndunarviðræður munu ganga fyrir sig. „Það er óþægilegt að búa við þá óvissu að frumvarp til fjárlaga komi svo seint fram en við erum svo sem í þjálfum hvað það varðar,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Hann segir að ár hvert fari fram mikil vinna hjá stjórnendum við að skoða frumvarpið og máta reksturinn við það. Hann hafi þó litlar áhyggjur nú þar sem hljóðið í flestum stjórnmálaflokkum sé jákvætt. „Starfsemi Landspítalans er gríðarlega umfangsmikil og nauðsynleg almannaheill og við munum halda okkar striki sama hvað.“ „Það er bagalegt að frumvarpið komi svo seint fram. Afleiðingin verður sú að það verður að vinna allar rekstaráætlanir undir mun meiri pressu og þrýstingi en vanalega,“ segir Björn Karlsson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana. „En við tökum þessu eins og öðru.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira