Samstarf Garðabæjar og Klasa við uppbyggingu miðbæjar María Grétarsdóttir skrifar 4. ágúst 2016 06:00 Þann 9. maí 2005 gerði Ásdís Halla Bragadóttir fyrir hönd Garðabæjar samning við Klasa hf., þá í eigu Íslandsbanka og Sjóvár, vegna uppbyggingar á miðbæ Garðabæjar. Í viðaukasamningi Garðabæjar og Klasa frá því í desember 2005 kemur fram breytt eignarhald á Klasa sem Gunnar Einarsson fyrir hönd Garðabæjar samþykkir og er félagið þá í eigu Íslandsbanka ( 20%), Sjóvár (40%) og Rapps (40%) en Rapp var í eigu Þorgils Óttars Mathiesen. Þann 15. desember 2006 er gert samkomulag um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í miðbæ Garðabæjar. Í þeim samningi er gert ráð fyrir að heildarbyggingarmagn á svæðunum þremur verði allt að 31.631 fermetri auk bílakjallara. Íbúðarhúsnæði verði 21.187 fm brúttó/(18.009 nettó) og verslunar- og þjónustuhúsnæði 10.444 fm auk aðstöðu fyrir bensínstöð. Klasi greiði kostnað við framkvæmdir innan úthlutaðra lóða, þ.e. gerð gangstétta, torga, gatna og opinna svæða í samræmi við deiliskipulag. Lagt var mat á virði eigna Garðabæjar við yfirtöku Klasa á miðbæjarreitnum og var það eftirfarandi (m.v. 15.12.2006): Sveinatungureitur, 158.370.000 (núverandi Hagkaupsreitur) Garðatorg, 911.960.000 Kirkjulundur, 143.437.500 Samtals 1.213.767.500 krónur Greiðsla fyrir þessar eignir yrði í formi uppkaupa Klasa á eignum í eigu þriðja aðila; A. Uppkaupum á eignarhlutum Kirkjuhvols í Garðatorgi 1 og 3 B. Uppkaupum á eignarhluta SPH í Garðatorgi 1 C. Uppkaupum á eignarhluta Poseidon í Garðatorgi 1 D. Uppkaupum á eignarhluta S fasteigna ehf. í bensínstöð við Bæjarbraut Engar beinar greiðslur komu í bæjarsjóð fyrir lóðir sem voru metnar á rúmlega 1,2 milljarða í árslok 2006. Nýjasti viðbótarsamningurinn um miðbæ Garðabæjar er kallað samkomulag og er frá 24. maí 2013 en þá hefur nýtt félag tekið við eignarhaldi samningsins við Klasa, Garðabær miðbær hf., sem er í eigu Finns Reyrs Stefánssonar, Ingva Jónassonar, Tómasar Kristjánssonar og RA5 ehf. Garðabær hefur ekki fengið neinar greiðslur í gegnum samninga sína við Klasa en hefur hins vegar afhent Klasa nokkrar lóðir í Rjúpnahæð og Lyngprýði til viðbótar við framangreind svæði í miðbæ Garðabæjar (Sveinatungureitur, Garðatorg og Kirkjulundur) sem uppbót á minnkun byggingarmagns á miðbæjarreit sem þó var að ósk Klasa. Garðabær hefur einnig greitt á annan milljarð króna til Klasa í gegnum þessa samninga í formi bílastæðakjallara, leigugreiðslna, eftirgjöf vaxtatekna og frágangs á yfirborði á miðbæjarsvæði auk þess sem Garðabær rekur þessi svæði. Nú eru að hefjast framkvæmdir við nýjustu byggingu Klasa á miðbæjarsvæðinu og mun Garðabær leggja fjármagn til verkefnisins með fjármögnun á flutningi á innkeyrslu inn á torgið. Vandséð er hvernig valdhafar geta réttlætt þessa afhendingu á skattfé íbúa og eigna til verktaka án endurgjalds. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira