Glitnir greiðir starfsmönnum sínum einnig bónusa Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 31. ágúst 2016 08:52 Þær upphæðir sem um ræði í tilviki starfsmanna Glitnis séu álíka háar og hjá Kaupþingi, en þar geta bónusgreiðslurnar numið allt að 1,5 milljörðum samanlagt. vísir/heiða
Eignarhaldsfélag allra föllnu bankanna greiða starfsmönnum sínum bónusa en á hluthafafundi Glitnis í mars á þessu ári var tillaga um bónusgreiðslur til starfsmanna samþykkt. Tillögunni svipar til tillögu sem samþykkt var á hluthafafundi Kaupþings í gær. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag en þar segir að þær upphæðir sem um ræði í tilviki starfsmanna Glitnis séu álíka háar og hjá Kaupþingi, en þar geta bónusgreiðslurnar numið allt að 1,5 milljörðum samanlagt. Þannig fá þrír stjórnarmenn Glitnis hver um sig 25 prósent heildarupphæðar bónusanna en almennir starfsmenn sem er innan við tíu fá samtals 25 prósent af bónusgreiðslunum. Mikið hefur verið fjallað um bónusgreiðslur til starfsmanna eignarhaldsfélaga gömlu bankanna en í gær var greint frá því að starfsmenn gamla Landsbankans eigi einnig von á háum greiðslum fyrir störf sín. Þannig fái Kolbeinn Árnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, 23 milljónir á ári í þóknun fyrir störf sín, en þá eru bónusgreiðslur ekki teknar með. Ekki er gert ráð fyrir að Kolbeinn vinni meira en 40 daga á ári fyrir félagið. Mörgum blöskra þessar háu greiðslur til fárra starfsmanna félaganna en ekkert ólöglegt er hér á ferðinni þar sem ákvæði laga um fjármálafyrirtæki, og hversu háar bónusgreiðslur má borga, eiga ekki við eignarhaldsfélög föllnu bankanna. Ýmsir vilja þó reyna að setja einhverjar hömlur á greiðslurnar, meðal annars þingmenn, sem töluðu fyrir því á þingi í gær að leggja himinháa skatta á bónusana.
Tengdar fréttir Vilja leggja himinháa skatta á bónusgreiðslurnar: „Þetta verður að stöðva með öllum ráðum“ Bónusgreiðslur til starfsmanna Kaupþings og gamla Landsbankans voru ræddar á Alþingi í dag. 30. ágúst 2016 14:32 Indriði segir hægt að setja sérstakan skatt á ofurbónusana Samþykktar hafa verið milljarða greiðslur til stjórnenda Kaupþings og gamla Landsbankans. Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir engin sérákvæði um slíkar greiðslur í lögum en hægt væri að leggja sérstakan skatt á þær. 31. ágúst 2016 06:00 Stjórnarmenn Glitnis gætu fengið milljarða bónusgreiðslur Stjórnarmenn Glitnis munu fá milljón á dag greidda vinni þeir umfram 72 daga á ári. 14. mars 2016 12:23 Gætu fengið hundruð milljóna í bónus Markmið bónuskerfisins er að búa til hvata fyrir umrædda stjórnendur til að hámarka virði óseldra eigna félagsins. 30. ágúst 2016 10:12 Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira
Vilja leggja himinháa skatta á bónusgreiðslurnar: „Þetta verður að stöðva með öllum ráðum“ Bónusgreiðslur til starfsmanna Kaupþings og gamla Landsbankans voru ræddar á Alþingi í dag. 30. ágúst 2016 14:32
Indriði segir hægt að setja sérstakan skatt á ofurbónusana Samþykktar hafa verið milljarða greiðslur til stjórnenda Kaupþings og gamla Landsbankans. Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir engin sérákvæði um slíkar greiðslur í lögum en hægt væri að leggja sérstakan skatt á þær. 31. ágúst 2016 06:00
Stjórnarmenn Glitnis gætu fengið milljarða bónusgreiðslur Stjórnarmenn Glitnis munu fá milljón á dag greidda vinni þeir umfram 72 daga á ári. 14. mars 2016 12:23
Gætu fengið hundruð milljóna í bónus Markmið bónuskerfisins er að búa til hvata fyrir umrædda stjórnendur til að hámarka virði óseldra eigna félagsins. 30. ágúst 2016 10:12