Brýnt að berjast gegn því að gengi krónunnar rísi of mikið Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. ágúst 2016 09:15 Hannes Sigurðsson segir mikilvægasta kosningamálið vera að halda efnahagslegum stöðugleika. Fréttablaðið/Hanna
Hannes G. Sigurðsson hefur starfað hjá Samtökum atvinnulífsins, og forveranum, Vinnuveitendasambandi Íslands, frá 1986, eða í 30 ár. Hann hefur verið aðstoðarframkvæmdastjóri síðustu ár, en tók tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra þegar Þorsteinn Víglundsson sneri sér að öðrum verkefnum í síðustu viku. Hannes sér því núna um verkefni er lúta að samskiptum við fjölmiðla, tengingu skrifstofunnar við stjórn og mál sem lúta að rekstri skrifstofunnar. Hannes segir að Samtök atvinnulífsins séu um þessar mundir að vinna að ýmsum verkefnum varðandi heilbrigðismál, ferðaþjónustu og fleira. Fram undan séu kynningar á þessum verkefnum. „Við viljum líka leggja áherslu á okkar mál í aðdraganda kosningabaráttunnar. Síðan erum við náttúrlega í samskiptum við verkalýðshreyfinguna um ýmis mál sem fara ekkert frá okkur,“ segir Hannes um þau verkefni sem blasa við starfsmönnum skrifstofu SA þessa dagana. Hannes segir að Samtök atvinnulífsins hafi yfirleitt í aðdraganda kosninga staðið fyrir fundi þar sem vakin er athygli á þörfum atvinnulífsins fyrir gott rekstrarumhverfi og skattaumhverfi. „Ég býst við að við munum halda svoleiðis fund þó að hann hafi ekki verið dagsettur,“ segir Hannes. Hann segir það vera sína skoðun að brýnasta kosningamálið sé stöðugleiki í efnahagsmálum og að menn komi sér saman um peningamálastefnu sem leiði ekki til þess að gengi krónunnar ofrísi, eins og hefur verið í uppsiglingu. „Þannig að efnahagslegur stöðugleiki er aðalhagsmunamál atvinnulífsins og þar leika peningamál, ríkisfjármál og fjármál sveitarfélaga stóra rullu,“ segir Hannes og bætir því við að menntamál skipti líka máli. Staða framkvæmdastjóra SA var auglýst laus til umsóknar í dagblöðunum um helgina, en Hannes býst ekki við að sækja um. Hann býst því ekki við að gegna stöðunni lengi.
Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira