Segja ávísanir lyfja á ábyrgð lækna Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2016 16:35 Vísir/Vilhelm
Lyfjastofnun segir ávísanir lyfseðilsskyldra lyfja vera að öllu leyti á ábyrgð þess læknis sem gefur ávísunina út. Lyfjaávísun byggi á faglegu mati læknis og „þó svo að óskir sjúklings um að ávísað sé tiltekinni pakkningastærð geti komið inn í framangreint mat læknis, þá geta slíkar óskir aldrei ráðið því hvaða pakkningastærð verður fyrir valinu. Sérstaklega á þetta við um lyf sem valdið geta ávana og fíkn.“Tilefni tilkynningar er frétt í Fréttablaðinu í dag þar sem haft var eftir verkefnisstjóra lyfjamála hjá Embætti Landlæknis að læknar lendi oft í stappi við fólk þar sem hagkvæmara sé fyrir það að kaupa stærri skammta en minni. Jafnvel af lyfjum sem séu ávanabindandi.Sjá einnig: Oft ódýrara að kaupa stærri skammt ávanabindandi lyfja. Í tilkynningunni frá Lyfjastofnun segir að ákvörðun lyfjaverðs sé tekin með hliðsjón af lyfjaverði sambærilegra pakkninga á Norðurlöndum. Almennt séu litlar pakkningar óhagkvæmari í framleiðslun í framleiðslu og eigi það við flest lyf. „Ávísun á lyfseðilsskyld lyf, og ekki hvað síst eftirritunaskyld lyf, sem eru flest ávana- og fíknilyf, hlýtur að taka mið af þörf sjúklings hverju sinni fremur en töfluverði og ávísuninni stýrir læknirinn. Að gefnu tilefni skal á það bent að Embætti landlæknis á fulltrúa í lyfjagreiðslunefnd, en þar að auki eiga Lyfjastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og fjármálaraðuneytið fulltrúa í nefndinni.“
Mest lesið Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Sjá meira