Handbolti

Geir Sveinsson ráðinn landsliðsþjálfari Íslands

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Geir Sveinsson er næstur í röðinni til að leiða strákana okkar.
Geir Sveinsson er næstur í röðinni til að leiða strákana okkar. vísir/getty
Geir Sveinsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta, var í dag ráðinn þjálfari íslenska karlalandsliðsins. Þetta kom fram á fréttamannafundi HSÍ.

Geir tekur við starfinu af Aroni Kristjánssyni sem sagði starfi sínu lausu eftir dapurt Evrópumót í Póllandi, en Aron tók við starfinu þegar Guðmundur Guðmundsson hætti árið 2012.

Mjög erfiðlega hefur gengið hjá HSÍ að ganga frá þjálfararáðningu eða í það minnsta tilkynna hana opinberlega. Í dag eru 69 dagar síðan Aron Kristjánsson lét af störfum.

Sjá einnig:Ljubomir Vranjes hafnaði HSÍ

Handknattleikssambandið þurfti að kynna nýjan mann til leiks fyrir helgi því fyrir stafni er vináttulandsleikur við Noreg eftir þrjá daga, en ekki er enn búið að tilkynna landsliðshóp fyrir leikina tvo gegn Norðmönnum.

Það er þó búið að forvinna málið að því er Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, sagði í fyrradag.

Geir Sveinsson og Julian Róbert Duranuna fagna árangrinum í Kúmamótó.vísir/þorvaldur örn
Íþróttamaður ársins

Geir Sveinsson er einn dáðasti landsliðsmaður Íslandssögunnar en hann var fyrirliði íslenska liðsins um langt skeið og var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1997. Hann var þá fyrirliði íslenska landsliðsins sem náði fimmta sæti á HM í Kúmamótó en á þeim tíma lék hann með Montpellier HB í Frakklandi.

Geir hóf sinn feril með uppeldisfélaginu Val og varð margsinnis Íslands- og bikarmeistari áður en hann hélt í atvinnumennsku til Granollers á Spáni árið 1989. Hann spilaði svo með CMB Alzira Avidesa, Montpellier og Wuppertal til ársins 1999 þegar hann kom aftur heim.

Sjá einnig:Guðjón Valur: Frekar íslenskan en erlendan landsliðsþjálfara

 

Eftir 340 landsleiki og 502 mörk lagði Geir landsliðsskóna á hilluna eftir sigur á Sviss í umspilsleik í Kaplakrika árið 1999 sem kom Íslandi á EM í Króatíu 2000. Hann tók ekki þátt í mótinu.

Geir tók við þjálfun Vals árið 1999 og tók öðru hverju fram skóna og spilaði í vörn liðsins. Fyrsta árið hafnaði Valsliðið í níunda sæti í deildinni og komst ekki í úrslitakeppnina. Tímabilið 2000–2001 gekk hins vegar betur en þá komst liðið í undanúrslit.

Ári síðar kom Geir Valsliðinu í úrslitarimmuna og komst þar 2-0 yfir gegn KA en tapaði 3-2 eftir magnaðan oddaleik á Hlíðarenda. Hann ætti að þjálfa Val 2004.

Geir Sveinsson var aðalsérfræðingur Stöðvar 2 Sports á HM 2013.vísir/stefán
Frábær með Magdeburg

Geir sneri aftur í þjálfun árið 2009 og kom Gróttu þá örugglega upp úr 1. deild í efstu deild. Hann féll með liðið ári síðar en kom Gróttu aftur upp í fyrstu tilraun 2011. Hann hætti þá störfum hjá Gróttu.

Árið 2012 var Geir ráðinn þjálfari A1 Bregenz í Austurríki þar sem hann náði góðum og eftirtektarverðum árangri. Það skilaði honum einu af flottustu störfunum í þýska boltanum; þjálfarastarfinu hjá Magdeburg.

Geir kom Magdeburg, sem hefur mátt muna sinn fífil fegurri undanfarinn áratug, í úrslit bikarsins og í Evrópukeppni á fyrsta ári en var látinn taka pokann sinn í byrjun leiktíðar eftir erfiða byrjun liðsins. Hann hefur verið atvinnulaus síðan.

Geir var á sínum ferli sem leikmaður þekktur sem frábær varnarmaður en sem þjálfari hefur hann vanalega lagt mikið upp úr sterkum varnarleik en þannig náði Magdeburg t.a.m. árangri á síðustu leiktíð.

Fyrsta verkefni Geirs verður sem fyrr segir æfingaleikir gegn Noregi í Þrándheimi en fyrsta stóra verkefni hans verður að leggja Portúgal í tveimur leikjum heima og að heiman í umspili um laust sæti á HM 2017.



Blaðamannafundur HSÍ var í beinni útsendingu á Vísi en upptöku má honum má sjá í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Ljubomir Vranjes hafnaði HSÍ

Leitin að landsliðsþjálfara Íslands í handknattleik stendur enn yfir. Svíinn Ljubomir Vranjes gaf frá sér möguleikann á að taka við liðinu samkvæmt heimildum. Tíminn tifar viðurkennir formaður HSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×