Greiðslustaða ríkissjóðs batnað á síðustu árum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. mars 2016 09:43 Tekjujöfnuður ríkissjóðs var jákvæður um 30,4 milljarða króna á árinu 2015. vísir/valli
Tekjujöfnuður ríkissjóðs var jákvæður um 30,4 milljarða króna á árinu 2015 sem er nokkuð betri niðurstaða en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur jukust um 10,4 milljarða króna milli ára en greidd gjöld lækkuðu um tæpa 20 milljarða séu endurgreiðslur vegna verðtryggðra húsnæðislána talin með. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Þar segir að greiðsluuppgjör ríkissjóðs gefi upplýsingar um afkomu hans á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Uppgjör ríkissjóðs hafi á síðustu árum einkennst töluvert af óreglulegum liðum og einskiptisliðum ásamt bókhaldslegum færslum sem hafi mikil áhrif á endanlega afkomu. „Þótt greiðsluuppgjör endurspegli ekki rekstrarniðurstöðu að fullu gefur það þó góða mynd af raunverulegri stöðu og breytingum milli ára,“ segir í Hagsjánni. Á árinu 2010 var tekjujöfnuður ríkissjóðs neikvæður um tæpa 70 milljarða króna á árinu 2010 og jákvæður um rúma 30 milljarða á árinu 2013. Sem hlutfall af tekjum ríkissjóðs hefur tekjuafgangurinn farið úr því að vera neikvæður um 15 prósent af tekjum 2010 upp í að vera jákvæður um 4,5 prósent af tekjum á árinu 2015. Skatttekjur og tryggingagjöld eru stærstu tekjuliðir ríkissjóðs og nema tekjur af þeim um 90 prósent af innheimtum tekjum í heild. Skattar á tekjur og hagnað voru tæplega 228 milljarðar sem er 5,3 prósent aukning frá fyrra ári. Þar af jókst tekjuskattur einstaklinga um tæp 8% milli ára. Tekjuskattur lögaðila dróst hinsvegar saman um 4,5 próent milli ára sem er aðallega vegna minni tekna af sérstökum fjársýsluskatti. „Heildarniðurstaðan er því sú að greiðslustaða ríkissjóðs hefur farið batnandi á síðustu árum og tekjujöfnuður batnað jafnt og þétt.“
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira