Villuráfandi hagfræðingur Ingimar Karl Helgason skrifar 24. ágúst 2016 20:34 Það getur komið fyrir ágætasta fólk að fara með rangfærslur eða éta þær upp eftir öðrum. Svo eru dæmi um að fólk getur spennt bogann svo hátt að hann brestur. Hvort tveggja hendir Bolla Héðinsson hagfræðing. Hann ber Vinstri græn þungum sökum ásamt Tortólaflokkunum í grein í Fréttablaðinu og á Vísi. Þar fjallar hann um nýjan búnaðarsamning og meintan skilyrðislausan stuðning VG við málið.Gróðureyðing í boði VG, Sjálfstæðis og Framsóknar kallast skrifið. Þetta eru stór orð. Þeim hljóta að fylgja rök. Þau er ekki að finna í greininni. Undir þessari stóru fyrirsögn stendur aðeins þessi stutta efnisgrein: „Meðal þess sem sauðfjárhluti landbúnaðarsamningsins hvetur til er aukin gróðureyðing á viðkvæmum svæðum. Prófessor við Landbúnaðarháskólann hefur varað við þessu í blaðagreinum án þess að því hafi verið mótmælt.“ Í stuttu máli: Þetta stenst ekki skoðun. Hagfræðingurinn er á algjörum villigötum. Nánar: Grein Bolla ber með sér að hann hefur ekki haft fyrir því að kynna sér efnið. Ef menn vilja láta taka mark á sér, þá er lágmark að þeir færi sannfærandi rök fyrir stóryrðum. Ég leyfi mér að grípa niður í greinargerð Landssamtaka sauðfjárbænda við umrætt mál: „Engin haldbær rök hníga að því að þær kerfisbreytingar sem í nýja samningnum felast leiði til fjölgunar fjár. Framleiðsla á lambakjöti hefur verið frjáls og án kvóta í rúm 20 ár en fé fækkað. Ótti við offramleiðslu eða aukið beitarálag er beinlínis órökréttur og ástæðulaus miðað við efni samningsins. Áfram er stutt er við siðlega búskaparhætti í nýja samningum, m.a. með því að styrkja verulega gæðastýringu í sauðfjárrækt sem hefur verið eitt öflugasta sjálfbærniverkefni hér á landi frá 2003. Komið verður á sívirku rannsóknar-, mats- og vöktunarkerfi á landi til að styrkja vísindalegan grundvöll skynsamlegrar beitarstýringar.“ Við þetta má bæta að sauðfjárbændur hafa farið fremstir í flokki við uppgræðslu og landbætur. Þetta hafa þeir gert í samstarfi við Landgræðsluna í verkefninu Bændur græða landið og ekki síður í tengslum við landbótaáætlanir sem eru lykilþáttur í gæðastýringu sauðfjárræktar. Varlega áætlað hafa bændur grætt upp a.m.k. 45 þúsund hektara lands undanfarin ár í tengslum við þessi verkefni. Það er reyndar svo að undanfarin ár hafa bændur grætt upp land með mun meiri hraða en sem nemur hraða gróðureyðingar og ofnýtingar liðinna alda. Grein hagfræðingsins er annars minnst um þetta. Inntak hennar er einhvers konar útlistun á hans eigin hugmyndum um landbúnað og fýla út í VG og rekstur á samfélagslegum grunni. Fyrirsögnin „Lofsöngur til frjálshyggjunnar“ hefði sennilega lýst henni betur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Sjá meira
Það getur komið fyrir ágætasta fólk að fara með rangfærslur eða éta þær upp eftir öðrum. Svo eru dæmi um að fólk getur spennt bogann svo hátt að hann brestur. Hvort tveggja hendir Bolla Héðinsson hagfræðing. Hann ber Vinstri græn þungum sökum ásamt Tortólaflokkunum í grein í Fréttablaðinu og á Vísi. Þar fjallar hann um nýjan búnaðarsamning og meintan skilyrðislausan stuðning VG við málið.Gróðureyðing í boði VG, Sjálfstæðis og Framsóknar kallast skrifið. Þetta eru stór orð. Þeim hljóta að fylgja rök. Þau er ekki að finna í greininni. Undir þessari stóru fyrirsögn stendur aðeins þessi stutta efnisgrein: „Meðal þess sem sauðfjárhluti landbúnaðarsamningsins hvetur til er aukin gróðureyðing á viðkvæmum svæðum. Prófessor við Landbúnaðarháskólann hefur varað við þessu í blaðagreinum án þess að því hafi verið mótmælt.“ Í stuttu máli: Þetta stenst ekki skoðun. Hagfræðingurinn er á algjörum villigötum. Nánar: Grein Bolla ber með sér að hann hefur ekki haft fyrir því að kynna sér efnið. Ef menn vilja láta taka mark á sér, þá er lágmark að þeir færi sannfærandi rök fyrir stóryrðum. Ég leyfi mér að grípa niður í greinargerð Landssamtaka sauðfjárbænda við umrætt mál: „Engin haldbær rök hníga að því að þær kerfisbreytingar sem í nýja samningnum felast leiði til fjölgunar fjár. Framleiðsla á lambakjöti hefur verið frjáls og án kvóta í rúm 20 ár en fé fækkað. Ótti við offramleiðslu eða aukið beitarálag er beinlínis órökréttur og ástæðulaus miðað við efni samningsins. Áfram er stutt er við siðlega búskaparhætti í nýja samningum, m.a. með því að styrkja verulega gæðastýringu í sauðfjárrækt sem hefur verið eitt öflugasta sjálfbærniverkefni hér á landi frá 2003. Komið verður á sívirku rannsóknar-, mats- og vöktunarkerfi á landi til að styrkja vísindalegan grundvöll skynsamlegrar beitarstýringar.“ Við þetta má bæta að sauðfjárbændur hafa farið fremstir í flokki við uppgræðslu og landbætur. Þetta hafa þeir gert í samstarfi við Landgræðsluna í verkefninu Bændur græða landið og ekki síður í tengslum við landbótaáætlanir sem eru lykilþáttur í gæðastýringu sauðfjárræktar. Varlega áætlað hafa bændur grætt upp a.m.k. 45 þúsund hektara lands undanfarin ár í tengslum við þessi verkefni. Það er reyndar svo að undanfarin ár hafa bændur grætt upp land með mun meiri hraða en sem nemur hraða gróðureyðingar og ofnýtingar liðinna alda. Grein hagfræðingsins er annars minnst um þetta. Inntak hennar er einhvers konar útlistun á hans eigin hugmyndum um landbúnað og fýla út í VG og rekstur á samfélagslegum grunni. Fyrirsögnin „Lofsöngur til frjálshyggjunnar“ hefði sennilega lýst henni betur.
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun