Fjármálaóreiða Menningarfélagsins Akureyrar ástæða taprekstur Sveinn Arnarsson skrifar 3. september 2016 07:00 Menningarfélag Akureyrar er staðsett í Hofi
Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að veita Menningarfélagi Akureyrar (MAK) 75 milljóna króna fryrirframgreiðslu vegna slæmrar fjárhagsstöðu félagsins. Er slæm fjárhagsstaða rakin til ófullnægjandi bókhaldsvinnu og óreiðu í fjármálum Gunnars Gunnsteinssonar, fyrrum framkvæmdastjóra MAK sem sagði upp í nóvember á síðasta ári. „Staðan þegar ég kom inn í félagið var þröng, nokkurskonar óvissuástand og erfið fyrir starfsfólkið þannig að ég leitaði til bæjarins fljótlega eftir ráðleggingum og aðstoð,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, núveandi framkvæmdastjóri MAK. „Bærinn veitti bæði stuðning og ráðgjöf sem endar núna í því að bærinn veitir okkur fyrirframgreiðslu.“ Í lok nóvember á síðasta ári hætti Gunnar I Gunnsteinsson störfum af persónulegum ástæðum eins og sagt var í yfirlýsingu frá félaginu. Nú hefur komið á daginn að fjármálaóreiða sé ein stærsta ástæða þess að Gunnar hætti. Þuríður Helga segir það hafa tekið um tvo mánuði að ná yfirsýn yfir rekstur félagsins og hafði KPMG aðstoðað við endurskoðun til að átta sig á stöðunni. „Við vonumst eftir því núna að vinna okkur úr þessari stöðu. Það eru allir starfsmenn boðnir og búnir að vinna að þessu verkefni,“ segir Þuríður Helga.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Fleiri fréttir Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Sjá meira