Styrkingin ekki skilað sér til neytenda Ásgeir Erlendsson skrifar 3. september 2016 21:06
Alþýðusamband Íslands segir eðlilegt að neytendur geri þá kröfu að afnám vörugjalda á byggingarvörur, lægri virðisaukaskattur og styrking krónunnar skili sér í vasa þeirra. Þvert á móti hefur vísitala byggingarvara hækkað þrátt fyrir að ætla mætti að vörurnar hefðu geta lækkað umtalsvert. Í upphafi ársins 2015 voru vörugjöld afnumin af tilteknum byggingarvörum og á sama tíma var virðisaukaskattur lækkaður úr 25,5 prósent í 24 prósent. Á sama tíma hefur gengi krónunnar styrkst mikið og til að mynda hefur gengi hennar gagnvart evru styrkst um 16 prósent á þessu tímabili. Alþýðusamband Íslands hefur undanfarnar vikur skoðað verðþróun á byggingarvörum hér á landi með þetta til hliðsjónar. „Þetta hefði auðvitað allt átt að skila sér í lækkun á byggingarvörum. En við sjáum í þeim tölum sem við höfum – vísbendingar úr vísitölu neysluverðs sem Hagstofan mælir og okkar eigin skoðunum, þá sjáum við engar vísbendingar um að þetta hafi skilað sér í neinni lækkun í byggingarvörum til neytenda,” segir Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ. Vísitala byggingarvara hefur á hinn bóginn hækkað um 1,5 prósent á tímabilinu sem um ræðir. Hafa skal í huga að vörur á borð við steypu, timbur og einangrun báru ekki vörugjöld fyrir breytingarnar en engu að síður vekur það upp spurningar hvers vegna hagstæð gengisþróun hafi ekki haft áhrif á vísitöluna. „VIð hefðum að minnsta kosti átt að sjá áhrifin þannig að það kæmi fram sem lækkun en ekki hækkun á þessum vöruflokk og það er auðvitað mjög eðlilegt að almenningur geri kröfu að þetta skili sér í lægra vöruverði til neytenda,” segir Henný. Sigurður Pálsson, forstjóri Byko segir að fyrirtækið hafi skilað vörugjaldslækkunum til neytenda en kjarasamningar síðasta árs hafi verið þungt högg og í ljós lítils veltuhraða á birgðum geti fyrirtækið fyrst núna farið að skila gengisstyrkingunni út í vöruverð. Við höfum skilað út í verðlagið gengisstyrkingunni eins og hún hefur komið til okkar. Hafa ber í huga að fyrst núna sem að gengisstyrkingin fer að hafa áhrif vegna þess að við erum að keyra á tiltölulega lágum veltuhraða og að koma gengisstyrkingunni í gegn tekur þennan tíma. Þannig að það er fyrst núna sem við erum farin að sjá möguleika á því að koma henna út,” segir Sigurður.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Báti var siglt yfir kajakræðara Langar biðraðir á Keflavíkurflugvelli óásættanlegar „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Sjá meira