Kópavogsbær sektaður um þrjár milljónir vegna brots gegn lögum um verðbréfaviðskipti Birgir Olgeirsson skrifar 24. febrúar 2016 15:15 Sveitarfélagið birti ekki innherjaupplýsingar eins fljótt og auðið er. Vísir/GVA
Stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) hefur lagt þriggja milljóna króna stjórnvaldssekt á Kópavogsbæ vegna brots gegn laga um verðbréfaviðskipti.Að því er fram kemur á vef FME birti sveitarfélagið ekki innherjaupplýsingar, sem fólust í tillögu sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi 14. janúar árið 2014, eins fljótt og auðið er á jafnræðisgrundvelli. Samkvæmt málsatvikum er Kópavogsbær útgefandi skuldabréfa sem skráð eru í Kauphöllinni. Á fundinum árið 2014 ákvað bæjarstjórnina að kaupa 30 til 40 íbúðir víðs vegar í Kópavogsbæ vegna neyðarástands á húsnæðismarkaði til að mæta vanda þeirra sem þurfa á félagslegum úrræðum að halda í húsnæðismálum. Var það niðurstaða FME að tillagan um húsnæðismál sem bæjarstjórnin samþykkt á fundi sínu hefði falið í sér innherjaupplýsingar. Fól tillagan í sér verulegan kostnað fyrir Kópavogsbæ og upplýsingar um slíkt til þess fallnar að hafa áhrif á verðlagningu skuldabréfa bæjarins sem skráð voru í kauphöll. Mátti því gera ráð fyrir því að upplýstur fjárfestir myndi að öllum líkindum nýta umræddar upplýsingar til að byggja fjárfestingarákvörðun sína á varðandi skuldabréf sveitarfélagsins. Fjármálaeftirlitið komst einnig að þeirri niðurstöðu að Kópavogsbær hefði ekki birt innherjaupplýsingar eins fljótt og auðið er og á jafnræðisgrundvelli og þar með brotið gegn lögum.
Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Sjá meira