Orkubloggari náði ekki kjöri í stjórn Fáfnis ingvar haraldsson skrifar 24. febrúar 2016 18:49 Ketill Sigurjónsson, frambjóðandi til stjórnar Fáfnis.
Ketill Sigurjónsson, lögfræðingur og umsjónarmaður Orkubloggsins, hlaut ekki brautargengi í framboði sínu um laust sæti í stjórn Fáfnis Offshore á hluthafafundi sem lauk síðdegis í dag. Ketill var tilnefndur af Steingrími Erlingssyni, stofnanda Fáfnis, sem sagt var upp sem forstjóra fyrirtækisins í desember. Ketill naut einnig stuðnings danska félagsins Optima A/S, en Steingrímur á 21 prósenta hlut í Fáfni. Ketill segir aðra hluthafa hafa stutt Davíð Stefánsson, starfsmann Íslandssjóða. Sjóðurinn Akur, sem er í rekstri Íslandssjóða, er stærsti hluthafi Fáfnis en íslenskir lífeyrissjóðir eru stórir hluthafar í Akri. Ketill segir því eigendur tæplega 25 prósenta hlutar í Fáfni verða án fulltrúa í stjórn fram að aðalfundi, þegar ný stjórn verður kjörin. Heimilt er að halda aðalfundinn í síðasta lagi í lok ágúst.Farið í skuldabréfaútgáfuÁ fundinum var einnig samþykkt að gefa út skuldabréfa að verðmæta tæplega 200 milljóna króna sem bera muni 20 prósenta vexti. Hluthafar munu fá að skrá sig fyrir skuldabréfinu í samræmi við eignarhlut sinn á undan öðrum. Kaupendur bréfanna munu geta breytt þeim í hlutafé í Fáfni og þannig eignast allt að 60% hlut í félaginu. Því mun hlutur þeirra hluthafa sem ekki taki þátt í útboðinu þynnast verulega. Skuldabréfaútgáfan er gerð með það að markmiði að greiða af afborgunum lána vegna skipsins Fáfnis Viking, sem búið er að leggja á annan milljarð í smíði á. Ljóst er að þarf að leggja milljarða í viðbót til að ljúka smíði skipsins. Skipið er annað skip Fáfnis og átti að verða dýrasta skip Íslandssögunnar.Samningur við Sýslumann sagður langt kominnÁ fundinum sögðu núverandi stjórnendur Fáfnis að stefnt væri að því að ganga frá samningnum við sýslumanninn á Svalbarða bráðlega um viðbótarleigu á 5 milljarða olíuþjónustuskipinu Polarsyssel um þrjá mánuði í ári. Polarsyssel hefur verið í leigu 6 mánuði á ári á Svalbarða. Undir lok síðasta árs var tilkynnt um að 3 mánuðum yrði bætt við samninginn á ári þannig að Polarsyssel yrði í 9 mánuði í útleigu á ári en ekki er enn búið að ganga frá samkomulaginu. Lífeyrissjóðir stórir hluthafarAkur á 30 prósenta hlut í Fáfni og Steingrímur 21 prósent hlut. Aðrir hluthafar eru sjóðurinn Horn II, sem á 23 prósenta hlut. Sjóðurinn er rekinn af Landsbréfum, dótturfélagi Landsbankans og lífeyrissjóðir eru stórir hluthafar í. Þá á Sjávarsýn ehf, fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar 7,3 prósenta hlut. Havyard Ship Invest, félag skipasmíðastöðvar Fáfnis á 6,12 prósenta hlut og Optima Danmark á 2,45 prósenta hlut. Þá á Hlér ehf. 7,34 prósenta hlut og Landsbréf 2,5 prósenta hlut.
Mest lesið Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Fleiri fréttir Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Sjá meira