Vignir: Sérstaklega sætt fyrir mig að vinna Noreg Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. janúar 2016 19:38 Vignir Svavarsson skorar í kvöld. vísir/valli
Vignir Svavarsson var eðlilega kampakátur þegar Vísir ræddi við hann eftir 26-25 sigur strákanna okkar gegn Noregi á EM 2016 í Póllandi. Leikurinn var spennandi frá byrjun til enda og réðst á síðustu sekúndunni. „Þetta var hörkuleikur og alveg frábært að klára þetta. Við vorum að spila hörkuvörn þannig það hefði verið synd að fá ekki tvö stig út úr þessum leik,“ sagði varnarjaxlinn við Vísi eftir leikinn.Sjá einnig:Alexander: Ég er með gæsahúð „Mér fannst þetta allt í lagi hjá okkur í heildina. Norðmenn eru stórir og sterkir og þeir spiluðu upp á það allan leikinn. Þeir eru góðir maður og mann og mér fannst við gera ágætlega í að stoppa þá þó það megi gera betur.“ „Þetta er allt á uppleið hjá okkur og ég var ánægður með þetta í kvöld.“ Íslenska liðið fékk tvö tækifæri í seinni hálfleik til að ganga frá leiknum en alltaf hengu Norðmenn inn í leiknum. „Það er bara eins og það er. Þetta spilaðist bara svona í kvöld,“ sagði Vignir.Sjá einnig:Arnór: Við áttum að loka þessu fyrr „Við erum alltaf í hörkuleikjum við Noreg. Þannig hefur það bara verið og þetta var engin undantekning. Þetta var rosalega sætur sigur.“ Vignir segir það mjög gaman fyrir sig að vinna Noreg. „Helmingurinn af fjölskyldunni minni býr í Noregi þannig þetta er sérstaklega gaman fyrir mig. Þess vegna fagnaði ég svona rosalega,“ sagði hann. Vignir hafði fulla trú á Björgvin Páli í lokaskotinu. „Ég hafði engar áhyggjur af skotinu. Ég var byrjaður að fagna áður en en það var tekið,“ sagði Vignir Svavarsson.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira