Hönnun er undirstöðugrein Sigrún Birgisdóttir skrifar 19. október 2016 07:00 Það sem er hannað í dag stjórnar á morgun. Hlutir, ferlar, húsnæði og umhverfi framtíðarinnar mótast af ákvörðunum sem við tökum hér og nú. Hönnunarhugsunin sem ræður ríkjum í okkar samtíma hefur úrslitaáhrif á lífshætti og lífsskilyrði næstu áratuga. Matvælin sem við þróum og hönnum í dag hafa áhrif á vistkerfi, hvernig við miðlum upplýsingum hefur áhrif á skilning, hönnun skóla hefur áhrif á nám og þekkingu, heimilin sem við hönnum hafa áhrif á vellíðan, hönnun ferðaþjónustu ræður hvort við förum vel eða illa út úr því að fá milljónir manna í heimsókn árlega. Menntun hönnuða er augljóslega grundvallaratriði fyrir samfélag framtíðarinnar. Þetta skilja umsækjendur um háskólanám: Á síðustu árum hafa fjórum sinnum fleiri sótt um nám í Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands en hægt hefur verið að taka við. Þessir umsækjendur átta sig á að hönnun er ein mikilvægasta atvinnugrein framtíðarinnar og að sóknarfærin eru mikil. Það sem umsækjendur skilja verða yfirvöld að skilja líka. En þau eru ekki alveg búin að ná þessu, að hönnun er mikilvæg atvinnugrein og mikilvæg atvinnulífinu. Kannski hjálpar að hafa í huga orð Steve Jobs: „sumir halda að hönnun snúist um hvernig hlutir líta út, en auðvitað er hönnun, þegar kafað er dýpra um hvernig hlutirnir virka“.Skilningsleysi stjórnvalda Listaháskólinn er fjarri því að fá þau framlög sem nauðsynleg eru til að geta skapað hönnunargreinum nauðsynleg vaxtarskilyrði. Nýsköpun og þróun krefst rannsókna. Til að geta veitt nemendum þá menntun sem kemur þeim í fremstu röð þurfa starfsskilyrði þeirra sem fást við rannsóknir og kennslu að vera fyrsta flokks. Á meðan sú menntun sem í boði er er samkeppnishæf við fyrsta flokks hönnunarháskóla í nærliggjandi löndum eru aðstæður til rannsókna það ekki. Naum framlög til Listaháskólans lýsa því miður fullkomnu skilningsleysi stjórnvalda á hlutverki hönnunar og lista í mótun framtíðar. Skertir möguleikar skólans til þekkingarsköpunar á sviði hönnunar er tap fyrir samfélagið í heild sinni. Erlendis sjáum við mörg dæmi um hvernig innleiðing hönnunarhugsunar hefur leitt til umbóta í atvinnulífi og stjórnsýslu. Hönnunarhagkerfið (Design economy) fer vaxandi í Evrópu þar sem litið er á hönnun í sem víðasta samhengi sem hreyfiafl nýsköpunar og innan Evrópusambandsins hefur verið stutt hressilega við að auka hlutverk hönnunar í viðskiptum og opinberu lífi. Í dag fær Listaháskólinn miklu lægri framlög til rannsókna og þróunar en aðrir háskólar. Það verður að breytast. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Ég vel Höllu Hrund í liðið mitt Guðmundur Þórður Guðmundsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr. Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er besti skólastjórinn? Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Vofa húsagans býsnast enn Haukur Már Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar