Reykjaneshöfn og Thorsil ehf. hafa í dag gert með sér samkomulag um að fyrsti gjalddagi gatnagerðargjalda á grundvelli Lóðar- og hafnarsamningsins færist aftur til 15. maí 2016. Þetta er í fimmta sinn sem gjalddaga er frestað.
Tildrög samkomulagsins eru þau að framgangur verkefnisins sem Lóðar- og hafnarsamningurinn tekur til hefur verið nokkru hægari en ráð var fyrir, m.a. hvað varðar afléttingu fyrirvara vegna útgáfu leyfa og afgreiðslu ESA. Vegna þessara tafa hafa aðilar breytt tímamörkum gagnkvæmra skuldbindinga.
Samkomulagið gerir meðal annars ráð fyrir að fyrsti gjalddagi gatnagerðargjalda á grundvelli Lóðar- og hafnarsamningsins færist aftur til 15. maí 2016, gegn því að búið verði að aflétta fyrirvörum fyrir þann tíma.
Fresta gjalddaga í fimmta sinn

Tengdar fréttir

Thorsil fær aftur greiðslufrest
Hafnarstjóri Reykjaneshafnar segist gera ráð fyrir að náist að greiða gjöldin þann 15. mars.