Á plötunni eru fjögur ný lög, öll á íslensku, en Unnsteinn Manuel Stefánsson, einn meðlima Retro Stefson, segir í samtali við Vísi að sveitin stefni á að gefa plötuna út á vínyl og geisladisk í vor og þá muni nokkur lög bætast við.
Aðdáendur mega því eiga von á nýju efni á nýju ári frá Retro Stefson þrátt fyrir að sveitin sé að hætta en aðspurður segir Unnsteinn Manuel að það megi segja að um sé að ræða kveðjuplötu sveitarinnar. Búið er að taka upp öll lögin en þau sem eru ókomin út á eftir að mixa.

Nánast er uppselt á kveðjutónleika sveitarinnar í Gamla bíói á föstudag en sveitin hefur undanfarin ár spilað á tónleikum rétt fyrir áramót.
„Vanalega fyrir aðfangadag höfum við selt um 50 miða á tónleikana sem við höfum haldið á þessum tíma undanfarin ár og svo selst allt í vikunni milli jóla og nýárs en núna vorum við búin að selja 500 miða fyrir jól og yfir jólin seldust 150 miðar,“ segir Unnsteinn. Gamla bíó tekur um 750 manns svo aðeins eru um 100 miðar eftir en miðasalan fer fram á tix.is.
Hlusta má á plötuna af Spotify í spilaranum hér fyrir neðan.