Vodafone og 365 ná samkomulagi um sölu á pökkum 365 Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. mars 2016 11:44 F.v. Sævar Freyr Þráinsson forstjóri 365 og Björn Víglundsson framkvæmdastjóri sölu & þjónustusviðs Vodafone handsala samkomulagið.
Vodafone og 365 hafa gengið frá samningi sem gerir Vodafone mögulegt að bjóða til sölu áskriftarpakka 365, þ.e. Stöð 2, Skemmtipakkann og Sportpakkann. Fjölmiðlafyrirtækið verður nokkurskonar heildsali og selur Vodafone aðgang að fyrrnefndum afþreyingarpökkum. „Þetta er áhugavert skref sem við tökum nú með Vodafone og er liður í stefnu 365, að sækja fram með samstarfsfyrirtækjum. Er þetta í takt við þróun sem hefur verið að gerast á erlendum markaði,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365. „Þetta er ánægjulegur áfangi en við teljum pakka 365 frábæra viðbót við vöruflóruna í Vodafone Sjónvarpi. Samningurinn auðveldar viðskiptavinum enn frekar frekar lífið hvað varðar fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu þeirra en með þessu móti geta þeir verið með allt á einum stað, á einum reikningi, sem einfaldar mjög allt utanumhald. Hvort sem um ræðir Stöð 2, Sportpakkann eða Skemmtipakkann, eru allar þessar vörur sneisafullar af vandaðri gæðaafþreytingu, sem við hlökkum til að hafa sem hluta af vöruúrvali Vodafone,“ segir Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustu Vodafone. Umræddir pakkar eru þegar aðgengilegir í Vodafone Sjónvarpi og hægt að kaupa áskrift með fjarstýringunni.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira