Fasteignakaupum fækkar en verðið fer hækkandi Birgir Olgeirsson skrifar 18. mars 2016 08:41 Sé litið á þróunina frá ágústmánuði 2015 sést að fjölda viðskipta á tímabilinu frá september til janúar hefur stöðugt fækkað. Vísir/Vilhelm
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% milli mánaða í febrúar, þar af hækkaði fjölbýli um 0,6% og sérbýli lækkaði um 0,3%, að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans. Síðustu 12 mánuði hefur fjölbýli hækkað um 8,7%, sérbýli um 1,8% og er heildarhækkunin 8,5%. Aðeins virðist því hafa dregið úr stöðugu hækkunarferli húsnæðis sem heldur þó áfram. Landsbankinn segir verðbólgu hafa verið lága á síðustu misserum og því hafi raunverð fasteigna hækkað umtalsvert. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hafði í febrúar einungis hækkað um 0,7% síðustu 12 mánuði þannig að stærstur hluti hækkana á húsnæði kemur fram sem raunverðshækkun sem er frekar óvenjuleg staða hér á landi. 6.900 kaupsamningum var þinglýst íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2015, sem var 17,5% aukning frá árinu áður. Meðalfjöldi viðskipta á ári síðustu 13 árin var tæplega 6.000 á ári og viðskiptin í fyrra voru þannig um 16% meiri en verið hefur að jafnaði síðustu 13 ár. Sé litið á þróunina frá ágústmánuði 2015 sést að fjölda viðskipta á tímabilinu frá september til janúar hefur stöðugt fækkað. Landsbankinn segir meginástæðu fyrir hækkun fasteignaverðs koma til af hefðbundnum áhrifaþáttum eins og þróun kaupmáttar, tekna, vaxtastigs af húsnæðislánum og atvinnustigs. Allir þessir þættir eru sagðir stefna í þá átt að ýta undir hækkun fasteignaverðs, t.d. hefur kaupmáttur launa aukist verulega á síðustu misserum. Þá blasi við að eitthvað vantar á að framboð íbúða anni eftirspurn og að greinilega sé þörf á fleiri nýjum íbúðum inn á markaðinn til þess að anna aukinni eftirspurn. Flestir undirliggjandi þættir vísa því í áframhaldandi hækkun fasteignaverðs. Hagfræðideild spáði í nóvember 8% árlegri hækkun fasteignaverðs á árunum 2016-2018.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira