Áhyggjur af lánum til ferðaþjónustunnar Ingvar Haraldsson skrifar 21. apríl 2016 07:00 Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Sigríður Benediktsdóttir , framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands. fréttablaðið/stefán „
Þetta er þáttur sem við höfum ákveðnar áhyggjur af,“ segir Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands, um áhrif sem breytingar á gengi krónunnar gætu haft á útlánahættu bankanna vegna lána til ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan er orðin sú atvinnugrein sem bankarnir hafa lánað næstmest til. Aðeins hefur verið lánað meira til sjávarútvegsins. Virði útlána til ferðaþjónustunnar nam um 127 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi síðasta árs, eða um 10 prósentum af heildarútlánum bankakerfisins. Til samanburðar nema útlán til verslunar 9 prósentum af heildarútlánum og útlán til sjávarútvegs 22 prósentum. Sigríður segir að sveiflur í gengi krónunnar, sérstaklega styrking á genginu, geti haft áhrif á afkomu ferðaþjónustunnar. Í riti Seðlabankans, Fjármálastöðugleika, sem kom út í gær, er bent á að aukin óvissa sé um þróun á gengi krónunnar í kjölfar afnáms fjármagnshafta sem þar með auki útlánaáhættu bankanna. Sigríður segir að álagspróf sem verið sé að leggja á bankana og verði kynnt í haustskýrslu Fjármálastöðugleika muni koma nokkuð inn á þessa þætti. Þá segir segir hún erfitt að fá góða yfirsýn yfir hvernig lán bankanna til ferðaþjónustufyrirtækja hafa þróast þar sem lán flokkist innan margra atvinnugreina. Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur áður sagt að hætta sé á offjárfestingum í hótelbyggingum. „Yfirleitt fara svona fjárfestingarbylgjur fram úr sér að lokum og það er bara spurning hvað það verður mikið,“ sagði Már í nóvember. Samkvæmt úttekt Markaðarins frá því í janúar eru áform um að byggja allt að 3.700 hótelherbergi hér á landi sem kostað geta allt að 80 milljarða króna í byggingu.Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 21. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira