Ómúsíkölsk sjósundskona sem hefur alltaf elskað að ferðast Sæunn Gísladóttir skrifar 9. mars 2016 10:30 Hrafnhildur Hafsteinsdóttir hefur mikinn áhuga á ferðalögum og hefur menntað sig víða í heiminum. Vísir/Stefán
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu og mun hún taka við starfinu þann 1. maí næstkomandi. „Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu nýja starfi. Ég hef fylgst með FKA í mörg ár og hvað þetta félag hefur verið að gera góða hluti. Þetta verður spennandi áskorun,“ segir Hrafnhildur. Hún segir að hún muni leggja upp úr því að sameina raddir samfélagsins í starfinu. „Það sem mér finnst skipta gríðarlega miklu máli í samfélagi okkar í dag er sameining, sameiginlega erum við sterkari. Ég held að við viljum öll það sama, við viljum öll jafnrétti á vinnumarkaði, launajafnrétti og konur í stjórnir og stjórnendastöður en segjum það kannski á mismunandi hátt. Ég vil sameina raddirnar.“ Hrafnhildur hefur fimmtán ára reynslu í stjórnunar-, markaðs- og kynningarmálum. Hún starfaði sem verkefnastjóri MBA-náms í Háskólanum Reykjavík frá 2007 en áður var hún kynningarstjóri Námsgagnastofnunar. Hún segir reynsluna í HR koma til með að nýtast vel í nýju starfi. „Þetta er rosalega fjölbreytt starf og það er mikil alþjóðleg tenging og tenging við atvinnulífið. Frá 2007 hef ég útskrifað átta árganga af stjórnendum þannig að ég hef unnið með þeim við alls konar áskoranir í gegnum árin." Hrafnhildur hefur víðtæka menntun. Hún er með PLD frá IESE Business School í Barcelona, BA-gráðu í almannatengslum frá Auckland University of Technology á Nýja-Sjálandi og IAA diplómagráðu í markaðs- og auglýsingafræðum frá IACT í Kúala Lúmpúr. „Ég hef alltaf elskað að ferðast. Þetta er oft mjög skrítið hvernig maður endar á ákveðnum stöðum. Ég var flugfreyja að fljúga og fann mjög flottan skóla sem kenndi alþjóðlega gráðu í markaðs- og auglýsingafræðum í Kúala Lúmpúr. Ég hafði verið að fljúga þangað og ákvað að stökkva til og flytja þangað í tvö ár og svo kláraði ég námið á Nýja-Sjálandi. Hrafnhildur er gift Bubba Morthens og eiga saman eiga þau sex börn. Hrafnhildur segir aðaláhugamálið vera að eyða tíma með fjölskyldunni. „Mér finnst skemmtilegast af öllu að vera með fjölskyldunni minni. Við förum í sveitina, að veiða, ferðumst og njótum þessara litlu hluta í lífinu sem skipta svo miklu máli.“ Hrafnhildur segir heimilið mjög músíkalskt, en allar stelpurnar æfi á hljóðfæri. „Ég passa ekki þarna inn, ég held að ég sé ómúsíkalskasta kona sem finnst, en ég hef þó gaman af tónlist. Svo finnst mér rosalega gaman að fara í sjósund, þannig að ég mun viðhalda tengingunni við HR, með því að halda áfram sjósundinu í Nauthólsvíkinni. Svo er ég svo heppin að búa við Meðalfellsvatn og ég stekk þangað inn á sumrin,“ segir Hrafnhildur.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira