Telja aðstæður svipaðar og á árinu 2007 Sæunn Gísladóttir skrifar 9. mars 2016 14:59 Þrjátíu og átta prósent stjórnenda í flutningum og ferðaþjónustu segja skort ríkja á starfsfólki, samkvæmt könnunninni. Vísir/GVA
Niðurstöður könnunar meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins einkennast af miklum og vaxandi umsvifum í íslensku efnahagslífi vegna örs vaxtar ferðaþjónustu, stóraukins kaupmáttar heimilanna og vaxandi fjárfestingum. Mat stjórnenda á núverandi aðstæðum í atvinnulífinu eru svipaðar og á árinu 2007 og mat á aðstæðum eftir sex mánuði mun betra en þá. Könnunin er gerð ársfjórðungslega fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands og er framkvæmd hennar í höndum Gallup. Fram kemur í frétt á vef SA að enn fjölgi fyrirtækjum sem finna fyrir vinnuaflsskorti, en svo háttar til um þriðjung þeirra samanborið við 17 prósent fyrir ári síðan. Búast má við tvö prósent fjölgun starfsmanna á almennum vinnumarkaði á næstu sex mánuðum sem svarar til 2.500 starfa. Skortur á starfsfólki og áformuð fjölgun starfsmanna er langmest í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Stjórnendur búast við kröftugri aukningu eftirspurnar á innanlandsmarkaði á næstunni og töluverðum hækkunum á verði á vörum og þjónustu fyrirtækjanna sem aðfanga þeirra. Jafnframt virðast þeir bjartsýnir um þróunina á erlendum mörkuðum. Fjárfestingar aukast mikið milli áranna 2015 og 2016 í öllum atvinnugreinum nema sjávarútvegi, en þó mest í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Á næstu tólf mánuðum búast stjórnendur við töluverðum vaxtahækkunum, að verðbólgan verði þrjú prósentog gengi krónunnar haldi áfram að styrkjast.Aðstæður mjög góðar í atvinnulífinu að mati stjórnendaVísitala efnahagslífsins, sem endurspeglar muninn á fjölda stjórnenda sem meta aðstæður góðar og slæmar, er nú svipuð og hún var árið 2007 þegar efnahagslífið einkenndist af ofhitnun. Mikill meirihluti stjórnenda, 76 prósent, telur aðstæður í atvinnulífinu góðar, en einungis 3 prósent að þær séu slæmar. Í öllum atvinnugreinum telur meirihluti stjórnenda aðstæður vera góðar.Almennt talið að aðstæður batni næstu 6 mánuðiMun fleiri stjórnendur telja að aðstæður í efnahagslífinu verði betri en að þær verði verri eftir sex mánuði. Fjörutíu og fjögur prósent þeirra telja aðstæður verða betri en 9 prósent verri. Stjórnendur í öllum atvinnugreinum eru bjartsýnir á framvinduna en bjartsýnin er langmest í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, en minnst er hún í sjávarútvegi. Meiri bjartsýni gætir á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni og meðal fyrirtækja sem einungis starfa á heimamarkaði en útflutningsfyrirtækja.Mikil fjölgun starfsmanna á næstunniRúmlega 30 þúsund starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum í könnuninni. Þrjátíu og átta prósent stjórnenda þeirra sjá fram á fjölgun starfsmanna á næstu sex mánuðum, þ.a. 4 prósent mikla fjölgun, 6 prósent sjá fram á fækkun en 56 prósent búast við óbreyttum fjölda. Þegar svör stjórnenda eru vegin með stærð fyrirtækjanna fæst að starfsmönnum þeirra fjölgi um rúmlega 2 prósent á næstu sex mánuðum. Sé sú niðurstaða færð yfir á almenna vinnumarkaðinn í heild má búast við að störfum þar fjölgi um 2.500 á næstu sex mánuðum. Fjölgun er áformuð í öllum atvinnugreinum, en langmest í flutningum og ferðaþjónustu, þar á eftir í þjónustugreinum og iðnaði, en minnst í verslun og sjávarútvegi.Búast við heldur meiri hagnaði á þessu áriHeldur fleiri stjórnendur búast við auknum hagnaði á þessu ári frá fyrra ári en þeir sem búast við minni hagnaði. Tuttugu og átta prósent stjórnenda búast við að hagnaður fyrirtækjanna sem þeir stjórna, sem hlutfall af veltu, aukist milli ára en 23 prósent að hann minnki. Stjórnendur í byggingariðnaði og flutningum og ferðaþjónustu eru bjartsýnastir um hagnað fyrirtækjanna.
Mest lesið Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent