
Farsæl fjölmenning í boði Ljósvetningagoða
Takið af ykkur skóna!
Furðufréttir af nýlegu neyðarútkalli lögreglunnar að félagsheimilinu Ými við Öskjuhlíð hafa vakið athygli. Þessi fyrrum griðastaður tónlistargyðjunnar, sem Karlakór Reykjavíkur reisti á sínum tíma, hýsir nú Félag múslima á Íslandi. Svo harkalegar deilur spruttu þar upp milli tveggja hópa múslima í Reykjavík að embættismenn Sýslumannsins í Reykjavík og lögreglumenn frá embætti lögreglustjórans í Reykjavík urðu að skerast í leikinn.
Ekki voru hinir íslensku lögreglumenn fyrr komnir á staðinn en þeim var gert að fara úr skónum að sið múslima, áður en þeir stigu fæti í gamla karlakórsheimilið. Tiplandi á sokkaleistunum reyndu þeir að stilla til friðar með þessum skapheitu fylgismönnum Múhameðs spámanns en allt kom fyrir ekki. Skyndilega barst leikurinn út á Ýmislóðina þar sem æsingamenn flugust á með stórhættulegum steypujárnsvopnum. Lögreglumennirnir þustu því út á sokkaleistunum til að stöðva bardagann og var mikil mildi að enginn fór sér að voða. Átök af þessum toga hafa vart þekkst á Íslandi síðan á söguöld – nema ef vera skyldi meðal liðsmanna undirheima.
Andlegt ofbeldi – fyrr og nú
Uppákoma þessi og aðrar róstur ósáttra fylkinga leiða hugann að blóði drifinni slóð átaka í aldanna rás, þar sem tekist var á um mismunandi hugmyndakerfi mannskepnunnar, ekki síst margbreytileika hugmyndarinnar um Guð og eðli hans. „Ég vil fara minn veg, þú vilt fara þinn veg,“ söng Einar okkar áttavillti á síðustu öld, hinni sömu og sló öll fyrri met í mannfórnum á altari trúarbragða, pólitískra isma og kreddusmíða. Viðhorfið til alræðis kommúnismans og óheftrar frjálshyggju nýkapítalismans markaði víglínur stjórnmálanna lungann úr síðustu öld, jafnt á Íslandi sem annars staðar.
Kristnir menn hafa ekki verið barnanna bestir í tímans rás, með endalausa karpi sínu um merkingu einstakra þátta Biblíunnar, að ekki sé minnst á andlegt ofbeldi gagnvart tilteknum hópum, s.s. konum og samkynhneigðum. Andlegt ofbeldi hefur svo aftur á síðari árum einkum birst okkur í vaxandi kröfu tiltekinna hópa um rétttrúnað gagnvart sinni sérvisku, kröfunni um skilyrðislaust og óbilandi „Political Correctness“ sem jafnan heftir skoðanafrelsi og vill fjötra frelsið til að gantast með tilteknar hugmyndir, trúarsetningar eða sjónarmið. Umfjöllun, sem gengur í berhögg við ríkjandi rétttrúnað um „viðkvæm“ málefni á borð við landamæri og kynjakvóta, getur orðið álitsgjöfum dýrkeypt, en djarfhuga uppistöndurum ábatasamt skemmtiefni.
Leysir Alnetið Almættið af hólmi?
Með aukinni menntun þjóðanna hefur þröskuldurinn milli þekkingar og trúar færst verulega til, ekki síst eftir opnun ómældra fróðleiksbrunna Netsins sem líkja má við allsherjar alfræðiorðabók. Alnetið hefur þannig sumpart tekið við hlutverki Almættisins varðandi svör við stórum spurningum og smærri. Meðal sumra þjóða í fjötrum ofríkis hentar slík upplýsingaveita reyndar lítt ráðandi valdhöfum og aðgengi að henni er því verulega skert.
When in Rome?…
Við Íslendingar státum af ýmsum þáttum sem þykja ekki sjálfsagðir meðal allra þjóða. Gestrisni er til dæmis eiginleiki sem við getum verið stolt af og eigum hvergi að slá af, frekar en umhyggju fyrir minna megandi systrum okkar og bræðrum í sambræðingi ólíkra menningarheima. Verum áfram gestrisin og hjartahlý en leyfum okkur að halda á lofti þeim viðmiðum sem við höfum komið okkur saman um hér í hánorðrinu og eru kjölfesta íslenskrar þjóðmenningar. Setjum skýr viðmið í umgengni okkar við nýja gesti og nýja þegna frá mismunandi löndum og menningarkimum. Þegar við dveljumst á Íslandi, lögum við okkur að íslenskum gildum, siðum og leikreglum.
Þorgeir Ljósvetningagoði var með ´etta!
Þegar vikið er að trúarhita og óbilandi sannfæringu um tilvist og vilja æðri máttarvalda, er hollast að taka vægt til orða en einkum þó til vopna. Að líkindum færði Þorgeir Ljósvetningagoði okkur farsælustu leiðina að friðsömu fjölmenningarsamfélagi nútímans: Að blóta á laun!
Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun

Ég vona að þú gleymir mér ekki
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu?
Grétar Birgisson skrifar

Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það?
Davíð Bergmann skrifar

Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans
Vésteinn Ólason skrifar

Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska?
Júlíus Valsson skrifar

Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna
Jón Þór Ólafsson skrifar

Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag
Davíð Aron Routley skrifar

Dæmt um efni, Hörður
Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda
Matthías Arngrímsson skrifar

Sóvésk sápuópera
Franklín Ernir Kristjánsson skrifar

Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum?
Anton Guðmundsson skrifar

Dæmir sig sjálft
Jón Pétur Zimsen skrifar

Mega blaðamenn ljúga?
Páll Steingrímsson skrifar

Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Hvað hefur áunnist á 140 dögum?
Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar

Samstarf er lykill að framtíðinni
Magnús Þór Jónsson skrifar

Kjarnorkuákvæði?
Dagur B. Eggertsson skrifar

Hver erum við? Hvert stefnum við?
Arnar Þór Jónsson skrifar

Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu
Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar

Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan!
Íris Björk Hreinsdóttir skrifar

Hugtakið valdarán gengisfellt
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ábyrgðin er þeirra
Vilhjálmur Árnason skrifar

Dæmt um form, ekki efni
Hörður Arnarson skrifar

Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk
Sævar Þór Jónsson skrifar

Um fundarstjórn forseta
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hjálpartæki – fyrir hverja?
Júlíana Magnúsdóttir skrifar

Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar
Matthías Arngrímsson skrifar

Áform um að eyðileggja Ísland!
Jóna Imsland skrifar

Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins
Grímur Atlason skrifar

Tekur ný ríkisstjórn af skarið?
Árni Einarsson skrifar