Tæpur helmingur Íslendinga segjast ætla til útlanda í sumarfríinu Atli Ísleifsson skrifar 22. júlí 2016 14:50 Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vísir/Valli
Íslendingar ætla í auknum mæli að ferðast til útlanda í sumarfríinu á kostnað ferðalaga innanlands. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR en ekki hafa fleiri sagst ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu frá því að mælingar hófust í júní 2011. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust 49,6 prósent ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu og þar af sögðust 14,4 prósent eingöngu ætla að ferðast utanlands. „Til samanburðar sögðust 35,2% ætla að ferðast utanlands árið 2013 og þar af sögðust 7,1% eingöngu ætla að ferðast utanlands sama ár. Þeim sem sögðust ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu hefur fækkað frá því 2013 þegar 82,8% sögðust ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu, borið saman við 70,9% nú. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 14,7% ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu, borið saman við 16,0% í fyrra,“ segir í frétt MMR. Samkvæmt könnuninni voru íbúar höfuðborgarsvæðisins líklegri til að ferðast innanlands en íbúar landsbyggðarinnar.Munur eftir stjórnmálaskoðunum Könnunin leiddi einnig í ljós nokkurn mun á ferðahögum eftir stjórnmálaskoðunum. „Þeir sem að sögðust styðja Framsóknarflokkinn voru líklegastir til að ferðast í sumarfríinu á meðan þeir sem sögðust styðja Samfylkinguna voru ólíklegust til að ferðast í sumarfríinu. Af þeim sem studdu Framsóknarflokkinn voru aðeins 4,8% sem sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu, borið saman við 23,1% þeirra sem studdu Samfylkinguna. Þeir sem að studdu Bjarta framtíð voru líklegastir til að segjast ætla að ferðast innanlands í sumar en þeir sem studdu Sjálfstæðisflokkinn voru ólíklegastir. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Bjarta framtíð sögðust 81,1% ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu, borið saman við 69,5% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkinn,“ segir í fréttinni. Nánar er fjallað um könnunina hér.
Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Sjá meira