Svíar kaupa Zymetech á milljarð ingvar haraldsson skrifar 28. janúar 2016 13:34 Dr. Ágústa Guðmundsdóttir stýrir rannsóknar- og þróunarstarfi Zymetech. vísir/Daníel
Sænska líftæknifyrirtækið Enzymatica AB hefur keypt 99,5 prósent hlutafjár íslenska líftæknifyrirtækinu Zymetech ehf.Kaupverð er greitt með 21,9 milljón hlutum í Enzymatica og áskriftarréttindum upp á 4 milljónir hluta til viðbótar, sem leiðir til þess að hluthafar Zymetech verða hluthafar í Enzymatica. Markaðsvirði 21,9 milljón hluta í sænska félaginu er metinn á rúman milljarð króna en Enzymatica er skráð á sænska First North markaðnum. Zymetech hefur unnið að rannsóknum og þróun afurða úr hafinu. Fyrirtækið hefur meðal annars einkaleyfi á Penzyme® sem unnið er úr ensímum í Norður-Atlantshafsþorski og nýtt hefur verið til framleiðslu á húð- og lækningavörum á borð við Penzim® og PreCold® auk þess að vera grunnefni í margþættu rannsóknar- og þróunarstarfi á undanförnum árum. Í tilkynningu frá Zymetech kemur fram að fyrirtækin hafa verið í viðskiptasambandi á liðnum árum og kaupin miða m.a. að því að skapa sterkari stöðu til að sækja fram með einkaleyfisvarða hagnýtingu á sjávarensímum í meðferðartilgangi. Gert er ráð fyrir að því umfangsmikla vísindastarfi sem unnið hefur verið á Íslandi verði haldið áfram með óbreyttum hætti. Kaupverð er greitt með hlutabréfum og áskriftarréttindum í Enzymatica, sem leiðir til þess að hluthafar Zymetech verða hluthafar í Enzymatica. Hjá Zymetech vinna tíu manns og munu þeir m.a. starfa við þá öflugu rannsóknar- og þróunarmiðstöð sem Enzymatica ráðgerir að starfrækja hér á landi auk þess sem framleiðsla á ensímum og efnablöndum verður áfram á Íslandi að því er segir í tilkynningunni. Heildarfjöldi starfsmanna Enzymatica verður um 25 fyrst um sinn en kaupunum, ásamt hlutafjáraukningu sem fylgir í kjölfarið, er ætlað að leggja grunn að kröftugri markaðssókn og verulegri aukningu í alþjóðlegum umsvifum. „Kaupin á Zymetech eru stór áfangi í fyrirhugaðri sókn Enzymatica á alþjóðamarkað“ segir Fredrik Lindberg, forstjóri Enzymatica. „Við öðlumst einkaleyfisvarinn rétt til að markaðssetja ColdZyme® um alla Evrópu og í u.þ.b. tíu öðrum löndum. Til viðbótar mun vísindaþekkingin innan rannsóknar- og þróunarteymis Zymetech verða frekari vöruþróun og stækkunaráformum okkar mikil lyftistöng“. „Sem hluthafi og fulltrúi stærstu hluthafa í Zymetech með 73.5% af hlutafjáreign fagna ég þessum viðskiptum og sömuleiðis metnaðarfullri vaxtastefnu Enzymatica. Við hyggjumst verða lykilhluthafar í Enzymatica til langs tíma litið“, segir Guðmundur Pálmason, stjórnarformaður Zymetech í tilkynningu.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira