ESA telur að endurnýjun raforkusamnings ekki fela í sér ríkisaðstoð Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2016 08:39 Íslensk stjórnvöld tilkynntu ESA um þriðju endurnýjun samnings Landsvirkjunar, um sölu raforku til álvers Norðuráls á Grundartanga í Hvalfirði, í maí 2016. Vísir/Vilhelm
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) telur að endurnýjun samnings Norðuráls við Landsvirkjun um kaup á raforku feli ekki í sér ríkisaðstoð þar sem hann sé gerður á markaðskjörum. Þetta segir í niðurstöðu stofnunarinnar sem gefin var út í dag. „Íslensk stjórnvöld tilkynntu ESA um þriðju endurnýjun samnings Landsvirkjunar, um sölu raforku til álvers Norðuráls á Grundartanga í Hvalfirði, í maí 2016. Upprunalegur samningur fyrirtækjanna tveggja var undirritaður árið 1997 en hann hefur nú verið framlengdur tvisvar. ESA lagði mat á samningsskilmálana og þær breytingar sem gerðar voru frá fyrri samningum. ESA kynnti sér auk þess arðsemisútreikninga sem Landsvirkjun og Norðurál lögðu til grundvallar samningnum. Landsvirkjun lagði fram yfirgripsmikil gögn sem sýna, að mati ESA, að samningurinn er í samræmi við sambærilega samninga sem önnur raforkufyrirtæki á Norðurlöndunum hafa gengist undir. Endurnýjaður samningur er tengdur við markaðsverð raforku á Nord Pool raforkumarkaðnum og kemur það í stað álverðstengingar í gildandi samningi. Þá er samningurinn arðsamur og skilmálar hans slíkir að einkarekið fyrirtæki myndi samþykkja hann við sambærilegar aðstæður. Því er ekki um að ræða ríkisaðstoð, að mati ESA,“ segir í tilkynningu.
Mest lesið Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Viðskipti innlent Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Viðskipti innlent Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Viðskipti innlent Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Viðskipti innlent Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Viðskipti innlent Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Viðskipti innlent AGS leggur til skattahækkanir Viðskipti innlent Eignast Securitas að fullu Viðskipti innlent „Ég var pæja sem vildi ekki vera með ljótan gulan hatt á hausnum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Gerður ráðin til BBA//Fjeldco Þjóðin hafi tekið rétta ákvörðun í Icesave málinu Úr tveggja milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjátíu Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Eignast Securitas að fullu Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Sjá meira