Gerum betur Hilmar Björnsson skrifar 8. júlí 2016 07:00 Hrannar B. Arnarsson skrifaði grein í Fréttablaðið 6. júlí með yfirskriftinni „Af hverju alltaf bara strákar?“ og gagnrýnir RÚV og Stöð 2 fyrir að fjalla ekki jafnt um stráka- og stelpumót í fótbolta. Áður en lengra er haldið vil ég benda á eftirfarandi: RÚV hefur sýnt frá stelpu- og strákamótum til jafns í fréttum RÚV í sumar. Í grein sinni fullyrðir Hrannar að ekki hafi verið fjallað um tiltekin íþróttamót stúlkna en þar hleypur hann á sig því ef hann hefði kynnt sér málið betur hefði hann séð að RÚV fjallaði svo sannarlega um þessi tilteknu mót í fréttum sínum. Leiðréttist það hér með. Umræðan um kynjamisrétti í íþróttum er samt sem áður þörf og vert að staldra við. Það er skýr og yfirlýst stefna RÚV að gæta jafnræðis um íþróttir kvenna og karla, rétt eins og í allri annarri dagskrárgerð og umfjöllun. Við viljum fjalla um íslenskt afreksfólk á stórmótum hvort sem um ræðir konur eða karla, börn eða fullorðna. Í þessum skrifuðu orðum fer Evrópumótið í frjálsum íþróttum fram í Amsterdam. Þar eru fimm frábærir fulltrúar Íslands. Fjórar konur og einn karl. RÚV sýnir beint fá öllum keppnisdögunum og fylgist sérstaklega með íslensku keppendunum. Þá sýndi RÚV beint frá Evrópumótinu í sundi í maí s.l. þar sem Hrafnhildur Lúthersdóttir hlaut þrenn verðlaun og vann hug og hjörtu Íslendinga. RÚV var á staðnum og náði að fanga þetta ótrúlega afrek sundfólksins okkar. Auðvitað er ekki hægt að sýna beint frá öllum íþróttaviðburðum sem tengjast íslensku íþróttafólki því við erum svo heppin að eiga margt framúrskarandi og glæsilegt íþróttafólk sem keppir úti um allan heim. Hér heima kappkostum við að sinna sem fjölbreyttastri íþróttaumfjöllun og þess gætt í hvívetna að fjallað sé jöfnum höndum um karla- og kvennaflokka. Hvort sem um er að ræða Íslandsmótið í golfi eða bikarúrslitin í körfubolta þá er ávallt stefna RÚV að sýna frá kvenna- jafnt sem karlamótum. Hlutverk okkar er einnig að varðveita glæsilega íþróttasögu Íslendinga og á vormánuðum voru sýndir þættir um íþróttaafrek Íslendinga þar sem ógleymanleg afrek í íslenskri íþróttasögu voru rifjuð upp, bæði kvenna og karla. Framundan eru svo Ólympíuleikarnir og Ólympíumót fatlaðra í Ríó og þar mun RÚV halda sínu striki og halda á lofti jafnrétti kynjanna hvað þetta varðar. Ég leyfi mér að fullyrða að fáar sjónvarpsstöðvar í heiminum gæta orðið eins vel að þessu kynjajafnræði í beinum íþróttaútsendingum og almennri umfjöllun. Þess má einnig geta að RÚV hefur að undanförnu stigið mörg stór framfaraskref í jafnréttismálum og sjást þess merki í allri starfseminni, þar á meðal í dagskrá. En það má alltaf gera betur, um það erum við fullkomlega meðvituð og höfum að leiðarljósi í okkar starfi. Það þarf t.a.m. nauðsynlega að fjölga konum í röðum íþróttafréttamanna og þar hefur RÚV nú þegar lagt sitt lóð á vogaskálar með því að standa fyrir árangursríku námskeiði fyrir konur sem áhuga hafa á starfinu. Við fögnum öllum ábendingum sem geta leitt til bættrar þjónustu við landsmenn. Jafnrétti skiptir okkur miklu máli og við viljum breyta, – það er okkar stefna og við ætlum að fylgja henni eftir.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason Skoðun Skoðun Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun