Píratar óska eftir aðstoð almennings til að fjármagna kosningabaráttuna sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 4. september 2016 19:46 „ Píratar eru ekki tengdir neinum sérhagsmunahópum og vilja ekki vera það," segir Sigríður Bylgja. vísir/ernir/anton
Píratar hyggjast fjármagna kosningabaráttu sína fyrir komandi alþingiskosningar í gegnum hópfjármögnunarsíðuna Karólínafund. Það er í fyrsta sinn sem stjórnmálaflokkur fjármagnar baráttu sína á þennan hátt. „Við álítum þetta góða leið til að vera eins sjálfstæð og við getum. Píratar eru ekki tengdir neinum sérhagsmunahópum og vilja ekki vera það. Þannig að við leitum frekar í kraft fjöldans til þess að styrkja okkur og vonumst til að fá góðar undirtektir hjá þjóðinni,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata, í samtali við Vísi. Hópfjármögnunarsíðunni var komið upp í kvöld. Þar segja Píratar að fram undan sé mikið kynningarstarf á stefnumálum þeirra og því þurfi þeir sárlega á stuðningi almennings að halda. Margt smátt geri eitt stórt. „Góðir Íslendingar, okkur sárvantar stuðning til að geta komið skilaboðum Pírata rækilega á framfæri við almenning í aðdraganda alþingiskosninga í haust. Í krafti fjöldans náum við framúrskarandi árangri,“ segir á síðunni. Sigríður Bylgja segir að til standi að hafa söfnunina opna fram að kosningadegi í október. „Það er ekki alveg búið að fastsetja kosningadag þannig að við erum ekki með nákvæma dagsetningu á hvenær við munum loka fyrir söfnunina. En ef það safnast rosalega mikið og meira en við þurfum á að halda þá verður afgangurinn látinn renna í gott málefni,“ segir hún. Framlag frá hverjum einstaklingi eða lögaðila má að hámarki vera 400 þúsund krónur samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálaflokka, en finna má styrktarsíðu Pírata hér.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira