Fordæmalaus fjöldi kvartana flugliða WOW air andri ólafsson skrifar 29. ágúst 2016 07:00 Flugfreyjur hjá WOW telja að flugfélagið brjóti gegn rétti þeirra til hvíldartíma.
Fordæmalaus fjöldi kvartana er á borði Flugfreyjufélags Íslands frá flugliðum WOW air. Kvartanirnar snúa aðallega að meintu broti á kjarasamningum varðandi hvíldartíma flugliða. Þetta staðfestir Sigríður Ása Harðardóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, en hún telur WOW air brjóta reglur um hvíldartíma með því að fara gegn ákvæðum kjarasamnings. Samkvæmt kjarasamningi eiga flugliðar ekki að vera með vinnuplan í fleiri en sex daga í röð. Reglurnar eru ekki nýjar en þær hafa verið í kjarasamningum við aðra flugrekendur í tugi ára. Flugfreyjufélag Íslands hefur ítrekað bent WOW air á hið meinta brot en flugfélagið túlkar samninginn á annan veg. „Þau nota hvíldarákvæði sem samið er um í kjarasamningi sem tækifæri til að brjóta upp sex dagana. Hvíldardagur hefur aldrei verið túlkaður sem lögbundinn frídagur. Vaktahvíld á milli fluga á ekki að brjóta upp sex daga regluna.“ Þá hefur ASÍ einnig gripið inn í og sendi WOW air greinargerð á dögunum þar sem fram kemur það mat að brotið sé á flugliðum. Þetta staðfestir Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá ASÍ, og segir að ASÍ taki undir röksemdir Flugfreyjufélagsins. Engar kvartanir hafa borist frá flugliðum Icelandair. „Þetta hefur alltaf verið virt af Icelandair í gegn um árin.“ Sigríður tekur dæmi um flugliða sem fer í flug til Evrópu á mánudegi og þriðjudegi. Næst er flug til Bandaríkjanna á miðvikudegi. Flugliðinn kemur heim á föstudegi og ætti þá að fá tveggja nátta hvíld. „WOW air hefur ekki fylgt því og hefur sent flugliða í annað flug næsta dag. Flugliðar ættu ekki að mega fara fyrr en á sunnudeginum. Þarna eru þau að vinna í sjö daga í röð sem má ekki.“ Til skoðunar er að ganga lengra í málinu. „Á næstunni munum við skoða hvort farið verði í einhverjar aðgerðir eða með málið fyrir félagsdóm. Ásetningsbrot aðila á samningi getur vikið friðarskyldu til hliðar.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins veigra sumir flugliðar sér við að kvarta vegna málsins þar sem þeir hræðist það að það hafi áhrif á framtíð þeirra hjá fyrirtækinu. Sigríður segist hafa heyrt af þessu. „Þetta er auðvitað bara ein aðferðafræði í ógnunarstjórnun, að fólki finnist það ekki geta leitað réttar síns.“ Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air segir félagið hafna því alfarið að reglur um hvíldartíma flugliða séu ekki virtar hjá félaginu. „WOW air fylgir í starfsemi sinni opinberum reglum um flug- og vinnutímamörk og hvíldartíma flugliða. Allar vaktaskrár eru í samræmi við reglurnar og er öllum flugliðum veittur hvíldartími í samræmi við reglurnar og ákvæði kjarasamnings.“
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira