Samskip ganga frá kaupum á Euro Container Line Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2016 10:19 Siglingaleið Samskipa í Noregi. Mynd/Samskip
Samskip hafa gengið frá kaupum á norska flutningafyrirtækinu Euro Container Line (ECL). Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa, segir að kaupverðið sé trúnaðarmál. Í tilkynningu segir að kaupin séu í takt við áform félagsins um vöxt á þessu markaðssvæði og um leið stærstu kaup þess í Noregi frá upphafi. „Aukin tíðni ferða og meiri hraði eflir þjónustu við viðskiptavini með umsvif í Noregi. Á það sérstaklega við sjávarútveg á svæðinu sem nýtur góðs af betri þjónustu á norsku ströndinni. Heildar flutningsmagn Samskipa í Noregi vex umtalsvert eða úr 55.000 gámaeiningum (TEU) í 90.000 gámaeiningar sem eykur heildarflutningsmagn félagsins úr 850.000 gámaeiningum í 885.000 gámaeiningar á ári. Þessi bætta þjónusta eykur frystiflutningsgetu Samskipa á milli Noregs og meginlands Evrópu um 275 til 300 frystigámaeiningar í viku hverri og tengir frystigeymslur félagsins í Álasundi og Rotterdam,“ segir í tilkynningunni.Í kjölfar kaupa á helmingshlut í Silver GreenPálmar Óli segir kaupin renna frekari stoðum undir áform Samskipa um að styrkja stöðu sína í Noregi og koma í framhaldi af kaupum félagsins á 50 prósent hlut í Silver Green. „Við getum nú boðið sjávarútveginum í Noregi betri þjónustu, sambærilega þeirri sem við höfum veitt um áratuga skeið á Íslandi og í Færeyjum.“ Eftir kaupin munu Samskip koma við í fjórtán höfnum og hugsanlega fleirum þegar fram líða stundir, en nýjasta viðbótin er Holla, Ikornes, Maloj og Haugasund í Noregi sem bætast við víðtækt net Samskipa og verða þrjár til fjórar brottfarir í viku frá Rotterdam og Hamborg eftir árstíðabundnu álagi, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira