Vera nýr framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2016 10:39 Vera Knútsdóttir og Berglind Sigmarsdóttir. Mynd/Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi
Vera Knútsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna. Vera var ráðin úr hópi 93 umsækjenda, en hún tekur við starfinu af Berglindi Sigmarsdóttur. Þröstur Freyr Gylfason, formaður Félags SÞ, segir félagið mjög þakklátt fyrir þann sterka hóp umsækjenda heima og erlendis sem hafi sótt um starfið. „Við teljum að ráðningarferlið hafi skilað okkur afar hæfum framkvæmdastjóra, enda býr Vera að víðtækri reynslu og þekkingu á alþjóða- og þróunarmálum, meðal annars af vettvangi í Líbanon og Sómalíu. Við vitum að sú reynsla kemur til með að nýtast mjög vel í störfum félagsins í þágu aukinnar almannavitundar, fræðslu og samfélagsumræðu á Íslandi um Sameinuðu þjóðirnar og þróunarmál. Stjórn félagsins er sömuleiðis ánægð með þá sýn um framþróun félagsins og þróun verkefna á næstunni, sem Vera færir inn í starfsemi félagsins,“ segir Þröstur Freyr. Í tilkynningu frá félaginu segir að Vera hafi um fimm ára reynslu af alþjóðastarfi og þar af þriggja ára reynslu af störfum hjá Sameinuðu þjóðunum. „Vera hefur reynslu af mannúðarstarfi og flóttamannaaðstoð og hefur starfað bæði hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, í Sómalíu og Flóttamannaaðstoð SÞ fyrir Palestínumenn, UNRWA, í Líbanon. Áður var hún í starfsnámi á viðskiptasviði og alþjóða- og öryggissviði utanríkisráðuneytisins, þ.á.m. verkefnum tengdum mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Vera lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og MA-gráðu í öryggis- og varnarmálafræðum frá Georgetown háskóla í Bandaríkjunum árið 2011.“
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira