Hamborgarafabrikkan söluhæst í sumar Sæunn Gísladóttir skrifar 4. nóvember 2016 07:00 Hamborgarafabrikkan var með 8,7 prósenta hlutdeild 30 söluhæstu staðanna. vísir/stefán
Hamborgarafabrikkan var það veitingahús landsins sem Íslendingar versluðu mest við á þriggja mánaða tímabili sem náði til loka september. Samkvæmt niðurstöðum Meniga nam markaðshlutdeild staðarins 8,7 prósentum meðal þrjátíu söluhæstu veitingastaða landsins, en hún dróst saman um 1,2 prósent milli ára. Næstvinsælasti staðurinn var Grillhúsið með sex prósenta hlutdeild, en hún dróst saman um 0,8 prósent milli ára. Svo voru Vegamót þriðji vinsælasti staðurinn, með 5,8 prósenta hlutdeild og bætti við sig 0,6 prósenta hlutdeild milli ára. Ljóst er að hamborgarastaðir eru mjög vinsælir, en í fjórða og fimmta sæti eru Greifinn og TGI Fridays, og svo má nefna það að fleiri staðir sem selja hamborgara eru á listanum, til að mynda Roadhouse, Ruby Tuesday og Hamraborg Ísafirði.Sala til Meniga-notenda á síðasta ári.Grillstaðir almennt eru vinsælir en Bautinn Grill er með 3,3 prósenta hlutdeild, Rub 23 er með 2,9 prósenta hlutdeild og Grillmarkaðurinn með 2,8 prósent. Hlutdeild Kringlukráarinnar eykst mest milli ára, eða um 1,4 prósent. Hlutdeild Hamborgarafabrikkunnar dregst aftur á móti mest saman milli ára. Sala hjá vinsælustu þrjátíu stöðunum nam 650 milljónum árið 2015, meðal notenda Meniga, og jókst um 17,5 prósent milli ára. Sala Hamborgarafabrikkunnar til notenda Meniga nam 41 milljón árið 2015 og jókst um 8,3 prósent. Sala Grillhússins nam 23 milljónum og jókst um 60,8 prósent, sala Greifans nam 22 milljónum og jókst um 9,1 prósent milli ára. Langmest er hlutfallsleg söluaukning hjá Apótekinu, en hún dregst mest saman eða um 13,3 prósent hjá Grillmarkaðnum. Úrvinnsla Meniga byggir á tölfræðilegum samantektum sem aldrei eru persónugreinanlegar. Við skilgreiningu á veitingahúsi er miðað við staði sem sérhæfa sig í mat sem snæddur er á staðnum, sem sérhæfa sig ekki fyrst og fremst í sölu áfengis eða skyndibita. Allir veitingastaðir sem reknir eru undir sama merkinu eru taldir með.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira