Handbolti

Tékkar með öruggan sigur á heimavelli

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Varamannabekkur Tékka í leiknum gegn Íslandi á dögunum.
Varamannabekkur Tékka í leiknum gegn Íslandi á dögunum. Vísir/ernir
Tékkland vann öruggan sjö marka sigur á Makedóníu í riðli Íslands í undankeppni EM í Króatíu 2018 35-28 en með því náðu Tékkar Íslandi að stigum.

Eftir nauman sigur Íslands í Laugardalshöllinni í vikunni máttu Tékkar ekki við því að tapa stigum á heimavelli í dag.

Tékkland byrjaði mun betur í dag og náði snemma góðu forskoti. Leiddu Tékkar með sjö mörkum 10-3  um miðbik fyrri hálfleiks og héldu þeir forskotinu út fyrri hálfleikinn.

Makedónía náði að minnka muninn niður í þrjú mörk í upphafi seinni hálfleiks en Tékkar svöruðu með 14-6 kafla og var sigurinn því í höfn.

Eru því þrjú lið jöfn í efsta sæti með tvö stig fyrir leik Íslands gegn Úkraínu í dag sem Ísland á inni en Ísland mætir Makedóníu næsta vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×