Sport

Glódís á EM í fjórða sinn: Getum ekki haft nein áhrif á andstæðinginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Glódís er reynsluboltinn í íslenska hópnum.
Glódís er reynsluboltinn í íslenska hópnum. vísir/anton
Glódís Guðgeirsdóttir er mætt á sitt fjórða Evrópumót í hópfimleikum en hún er reyndust í íslenska hópnum þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul.

Glódís var í liði Gerplu sem vann gullið á EM 2010 og 2012 og svo í silfurliði Íslands á heimavelli fyrir tveimur árum. Hún segir að undirbúningur og annað slíkt hafi breyst eftir að Ísland fór að senda sameiginlegt lið til keppni.

„Árin 2010 og 2012 voru þetta bara Gerplulið en núna eru þetta stelpur úr Stjörnunni, Gerplu og ein frá Selfossi. Það var líka þannig 2014. Núna eru landsliðsæfingar þar sem öll liðin þurfa að hittast en 2010 og 2012 voru þetta bara venjulegar félagsæfingar,“ sagði Glódís í samtali við blaðamann Vísis í Lukna höllinni í Maribor í Slóveníu þar sem EM fer fram.

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum.vísir/anton
Mætast á miðri leið

„Núna erum við að flakka á milli sala og maður fær aðrar áherslur, t.d. frá Stjörnuþjálfurum. Við hittumst á miðri leið. Gerpla keppir svona, Stjarnan keppir svona og við þurfum einhvern veginn að blanda þessu saman þannig að allir verði sáttir.“

Stelpurnar úr Gerplu og Stjörnunni eru samherjar í landsliðinu en mótherjar þegar þær keppa á innlendum vettvangi. Glódís segir að verði stundum svolítið skrítið.

„Það getur verið mjög furðulegt og erfitt því við erum góðar vinkonur. Svo þegar íslenska tímabilið byrjar á næsta ári þurfum við að keppa á móti hvorri annarri. En maður pælir ekkert í því, ég vil alltaf bara pæla í mínu liði,“ sagði Glódís en öfugt við flestar hópíþróttir geta keppendur í hópfimleikum ekki haft bein áhrif á frammistöðu mótherjans.

„Það getur enginn breytt því hvernig við keppum. Þetta er ekki eins og í fótbolta þar sem lið rýna í leik andstæðingsins. Við mætum bara og gerum eins og við ætlum að gera. Við getum ekki haft nein áhrif á andstæðinginn nema að sparka í hann, sem mun aldrei gerast,“ sagði Glódís hlæjandi.

Glódís er á góðum batavegi eftir ökklameiðsli.vísir/anton
Ökklinn heldur vonandi

Þótt enginn hafi sparkað í hana glímdi Glódís við meiðsli í aðdraganda EM fyrir tveimur árum.

„Ég meiddist tveimur vikum fyrir mót, hvíldi alveg fram að móti og fann svo ekki fyrir því,“ sagði Glódís sem hefur einnig verið að berjast við ökklameiðsli að undanförnu. Hún segist þó öll vera að koma til.

„Það hefur gengið ágætlega en það er samt ekkert langt síðan ég byrjaði að stökkva aftur á bak sem er mín sterka umferð. En ökklinn er góður núna og vonandi heldur hann út þetta mót,“ sagði Glódís.

Ísland lenti í 2. sæti á EM á heimavelli árið 2014.vísir/andri marinó
Sterkari en fyrir tveimur árum

Eins og áður sagði lenti Ísland í 2. sæti í kvennaflokki á heimavelli fyrir tveimur árum en Svíar urðu hlutskarpastir. En voru það vonbrigði að ná ekki að vinna þriðja gullið í röð?

„Við ætluðum að vinna en þetta mót var frábært og við gerðum það sem við gátum. Ég get ekki sagt að þetta hafi verið vonbrigði. Andstæðingurinn var bara betri og það er ekkert við því að gera,“ sagði Glódís. Henni finnst liðið í ár vera sterkara en 2014.

„Ég vil meina að við séum sterkari. Við erum búnar að keyra erfiðleikann upp, dansinn er orðinn erfiðari og gildir hærra. Við erum sömuleiðis að hækka erfiðleikastigið í stökkunum og þetta verður vonandi hreinna og betra,“ sagði Glódís að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×