Ísfélag Vestmannaeyja hagnast um 1,3 milljarða Sæunn Gísladóttir skrifar 12. október 2016 09:00 Stærsti eigandi Ísfélagsins, ÍV fjárfestingarfélag, er að mestu í eigu Guðbjargar. Vísir/Anton
Ísfélag Vestmannaeyja hagnaðist um 11,4 milljónir dollara, jafnvirði 1.300 milljóna íslenskra króna, á árinu 2015. Hagnaðurinn dróst saman um 13 milljónir dollara, 1.500 milljónir króna, milli ára. EBITDA-framlegð var 27,6 prósent árið 2015, samanborið við 24,7 prósent árið áður. Í árslok námu eignir félagsins 288,9 milljónum dollara, jafnvirði 33 milljarða íslenskra króna, samanborið við 271 milljón dollara í árslok 2014. Bókfært eigið fé í árslok var tæplega 130 milljónir dollara, jafnvirði 14,9 milljarða króna og eiginfjárhlutfall félagsins 45 prósent. Í árslok 2015 voru hluthafar í félaginu 135 en voru 137 í ársbyrjun. ÍV fjárfestingarfélag á um 89 prósent útistandandi hlutafjár og er eini hluthafi félagsins sem á yfir 10 prósent hlut. ÍV fjárfestingarfélag er nánast alfarið í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur í Vestmannaeyjum. Rekstrartekjur móðurfélagsins námu samtals 115,6 milljónum dollara, 13,2 milljörðum íslenskra króna, árið 2015, samanborið við 105,9 milljónir dollara árið áður. Helstu starfsþættir Ísfélagsins eru frysting sjávarafurða, fiskimjöls- og lýsisframleiðsla og útgerð fiskiskipa. Félagið á 50 prósenta hlut í Iceland Pelagic ehf. Meðalfjöldi starfa hjá móðurfélaginu var 249 á árinu 2015, samanborið við 270 árið áður. Heildarlaun og þóknanir til stjórnenda samstæðunnar á árinu 2015 námu 1,3 milljónum dollara, tæplega 149 milljónum króna.
Mest lesið Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Neytendur Svona getur þú sagt Nei í vinnunni án þess að fá samviskubit Atvinnulíf Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Atvinnulíf Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Samstarf Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Samstarf Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf Fleiri fréttir MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Sjá meira