Þess vegna stefni ég ríkinu Ólafur Ólafsson skrifar 17. október 2016 07:00 Ég hef stefnt embætti ríkissaksóknara og íslenska ríkinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafist þess að synjun endurupptökunefndar verði felld úr gildi og það verði viðurkennt að skilyrði fyrir ósk minni um endurupptöku Al-Thani málsins séu uppfyllt og málið verði tekið fyrir að nýju. Um ákvarðanir endurupptökunefndar, sem sett var á fót með lögum árið 2013, segir að þær séu endanlegar og verði ekki skotið til dómstóla. Það mætti því ætla að sjálfgefið væri að þessum kröfum mínum verði hafnað, en svo er ekki. Endurupptökunefnd er óháð stjórnsýslunefnd og heyrir því ekki undir dómsvaldið heldur framkvæmdarvaldið. Hæstiréttur hefur staðfest með dómi (mál 628/2015) að dómstólar hafi úrskurðarvald um ákvarðarnir endurupptökunefndar samkvæmt stjórnarskránni, enda ver stjórnarskráin þann sjálfsagða rétt borgaranna að geta borið lokaákvarðanir stjórnsýslunnar undir dómstóla og leitað réttar síns ef á þeim er brotið.Skýlaus réttur minn Af ofangreindu leiðir að það er skýlaus réttur minn að bera ákvörðun endurupptökunefndar undir dómstóla og með stefnunni er ég að nýta mér þann borgaralega rétt minn. Einhverjum þykir ef til vill að nóg hafi verið fjallað um Al-Thani málið og nú sé mál að linni. Ég tel svo ekki vera enda hef ég frá upphafi haldið fram sakleysi mínu og bent á að Hæstiréttur hafi lagt rangt mat á sönnunargögn í málinu og tveir af dómurum réttarins hafi verið vanhæfir vegna vensla. Hvort tveggja eru veigamikil atriði sem skipta sköpum hvað varðar réttláta málsmeðferð. Síðan stefnan var birt hefur Mannréttindadómstóll Evrópu sent stjórnvöldum ítarlegar spurningar er varða meðferð málsins fyrir íslenskum dómstólum. Það sýnir að efnislegar athugasemdir sem ég hef sett fram um málsmeðferðina eiga rétt á sér. Í stefnunni eru færð ítarleg og gild rök fyrir því að niðurstaða endurupptökunefndarinnar var ekki í samræmi við gögn sem lögð voru fyrir nefndarmenn, niðurstaðan var afar illa rökstudd og efasemdir eru um hæfi eins nefndarmanns. Dómstólar eiga að standa vörð um persónuréttindi sakborninga og virða réttlátar málsmeðferðarreglur. Þegar brotalamir finnast í réttarkerfinu, eins og í Al-Thani málinu, er nauðsynlegt að stjórnvöld hafi kjark til að bregðast við, leiðrétta mistök og koma í veg fyrir misbresti í dómskerfinu í framtíðinni.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 18.05.2024 Halldór Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Skoðun Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Skoðun Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu Arndís Bergsdóttr skrifar Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Skoðun Nýsköpun innviða Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir skrifar Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir skrifar Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hafa íslensk fjarskiptafélög málað sig út í horn? Aron Heiðar Steinsson skrifar Skoðun Á Ísland framtíð í NATO? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Fjallkonan nýja, hún Katrín Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Njótum reynslu Katrínar Valgerður Bjarnadóttir skrifar Skoðun Katrínu á Bessastaði Brynja Þorbjörnsdóttir skrifar Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar Sjá meira
Ég hef stefnt embætti ríkissaksóknara og íslenska ríkinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafist þess að synjun endurupptökunefndar verði felld úr gildi og það verði viðurkennt að skilyrði fyrir ósk minni um endurupptöku Al-Thani málsins séu uppfyllt og málið verði tekið fyrir að nýju. Um ákvarðanir endurupptökunefndar, sem sett var á fót með lögum árið 2013, segir að þær séu endanlegar og verði ekki skotið til dómstóla. Það mætti því ætla að sjálfgefið væri að þessum kröfum mínum verði hafnað, en svo er ekki. Endurupptökunefnd er óháð stjórnsýslunefnd og heyrir því ekki undir dómsvaldið heldur framkvæmdarvaldið. Hæstiréttur hefur staðfest með dómi (mál 628/2015) að dómstólar hafi úrskurðarvald um ákvarðarnir endurupptökunefndar samkvæmt stjórnarskránni, enda ver stjórnarskráin þann sjálfsagða rétt borgaranna að geta borið lokaákvarðanir stjórnsýslunnar undir dómstóla og leitað réttar síns ef á þeim er brotið.Skýlaus réttur minn Af ofangreindu leiðir að það er skýlaus réttur minn að bera ákvörðun endurupptökunefndar undir dómstóla og með stefnunni er ég að nýta mér þann borgaralega rétt minn. Einhverjum þykir ef til vill að nóg hafi verið fjallað um Al-Thani málið og nú sé mál að linni. Ég tel svo ekki vera enda hef ég frá upphafi haldið fram sakleysi mínu og bent á að Hæstiréttur hafi lagt rangt mat á sönnunargögn í málinu og tveir af dómurum réttarins hafi verið vanhæfir vegna vensla. Hvort tveggja eru veigamikil atriði sem skipta sköpum hvað varðar réttláta málsmeðferð. Síðan stefnan var birt hefur Mannréttindadómstóll Evrópu sent stjórnvöldum ítarlegar spurningar er varða meðferð málsins fyrir íslenskum dómstólum. Það sýnir að efnislegar athugasemdir sem ég hef sett fram um málsmeðferðina eiga rétt á sér. Í stefnunni eru færð ítarleg og gild rök fyrir því að niðurstaða endurupptökunefndarinnar var ekki í samræmi við gögn sem lögð voru fyrir nefndarmenn, niðurstaðan var afar illa rökstudd og efasemdir eru um hæfi eins nefndarmanns. Dómstólar eiga að standa vörð um persónuréttindi sakborninga og virða réttlátar málsmeðferðarreglur. Þegar brotalamir finnast í réttarkerfinu, eins og í Al-Thani málinu, er nauðsynlegt að stjórnvöld hafi kjark til að bregðast við, leiðrétta mistök og koma í veg fyrir misbresti í dómskerfinu í framtíðinni.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun
Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar
Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar
Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun