Körfubolti

Svona snýr maður aftur | Sjáið sigurkörfu Lewis í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lewis Clinch Jr..
Lewis Clinch Jr.. Vísir/Valli
Maður sem ber nafnið Clinch ætti að vera fæddur til þess að gera út um leiki og það gerði Grindvíkingurinn Lewis Clinch Jr. líka í Grindavík í kvöld.

Lewis Clinch Jr. kórónaði frábæran leik sinn í endurkomu sinni til Grindavíkur með því að skora sigurkörfuna undir lok leiks Grindavíkur og Þórs Þorlákshafnar í Röstinni í Grindavík.

Lewis Clinch Jr. skoraði alls 37 stig í leiknum en hann skoraði sigurkörfuna þremur sekúndum fyrir leikslok.

Clinch Jr. fékk boltann eftir sókn Þórsarar, brunaði upp völlinn og skoraði lagleg körfu með skoti utan af velli.

Grindavíkurliðið var fimmtán stigum undir, 56-71, þegar sex mínútur voru eftir en Grindvíkingar unnu lokamínúturna 17-0 og tryggðu sér sigurinn.

Hér fyrir neðan má sjá þessa sigurkörfu Lewis Clinch Jr. Í kvöld.

Sigurkarfa Lewis Clinch Jr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×