Lundabúðir mala gull sem aldrei Sæunn Gísladóttir skrifar 12. september 2016 10:46 Erlend kortavelta í minjagripaverslunum árið 2015 nam 3,2 milljörðum króna. Mynd/Getty
Í flokki sem tekur til ýmissa tegunda sérverslana, meðal annars minjagripaverslana, jókst velta í miðborginni þrjátíufalt á fimm ára tímabili frá 2008 til 2013. Erlend kortavelta í minjagripaverslunum árið 2015 nam 3,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í Árbók verslunarinnar 2016. Hlutdeild erlendra ferðamanna af heildarveltu íslenskra smásöluverslana nam sex prósentum árið 2015. Þeir greiddu með greiðslukortum sínum fyrir 22,7 milljarða árið 2015. Erlend kortavelta í verslunum heldur áfram að vaxa og jókst um 23 prósent frá árinu áður.Sjá einnig: Lundagróðinn er mikill og honum er misskiptFram kemur í Árbókinni að heildarvelta smásöluverslunar án virðisaukaskatts var á árinu 2015 tæpir 400 milljarðar króna samanborið við 376 milljarða árið áður. Vöxtur í veltu frá fyrra ári var 5,8 prósent og hefur ekki verið meiri milli ára frá hruni. Heildarvelta í smávöruverslun hefur ekki náð sömu hæðum og fyrir hrun, þrátt fyrir kaupmáttaraukningu, en hefur þó ekki verið hærri síðan 2008. Hlutur verslunar af landsframleiðslunni árið 2015 var 9,6 prósent samanborið við 9,3 prósent árið 2014 og 8,8 prósent árið 2013 en hlutur verslunar í landsframleiðslu hefur ekki verið hærri frá 2007.
Tengdar fréttir Lundagróðinn er mikill og honum er misskipt Milljarða velta er af rekstri hinna svokölluðu lundabúða. Álagning er óheyrileg – varan er að mestu fjöldaframleidd í Kína; seld sem íslensk sé. 8. október 2015 09:30 Mest lesið Íbúar vilja fella úr gildi starfsleyfi Hygge vegna mengunar Viðskipti innlent Öll heimilisverk skemmtileg nema eitt Atvinnulíf Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Viðskipti erlent Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Viðskipti innlent Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Viðskipti innlent Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Viðskipti innlent Fundinum mikilvæga frestað Viðskipti innlent Áhrif foreldra á starfsframa og velgengni barna sinna Atvinnulíf Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Samstarf Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íbúar vilja fella úr gildi starfsleyfi Hygge vegna mengunar Fundinum mikilvæga frestað Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Hagvöxtur mun minni en reiknað var með Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga Skýrt að verndarráðstafanir þurfi að ná yfir alla utan tollabandalags Fæstir hlynntir veru Rúv á auglýsingamarkaði Kaupsamningar fleiri í október þrátt fyrir óvissu á lánamarkaði Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Styrkás Sendafélagið kaupir 4G og 5G dreifikerfi Sýnar og Nova Auknar tekjur en nýta sér 12,7 milljarða veltufjármögnun Búi sig undir að berja í borðið Bindur vonir við „plan B“ Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Stöðva rekstur Vélfags Milljón króna sekt fyrir að reka gistiheimili án leyfis Ráðinn aðstoðarsköpunarstjóri Hvíta hússins Ráðin framkvæmdastýra Ljósleiðarans Lögleiða þurfi netspilun til að ná stjórn á ástandinu Aldrei mikilvægara að fylgjast vel með lánunum Fundu „þjóðaröryggis-málma“ á Grænlandi Vélfag hafi ítrekað grafið undan eigin undanþágu Sjá meira
Lundagróðinn er mikill og honum er misskipt Milljarða velta er af rekstri hinna svokölluðu lundabúða. Álagning er óheyrileg – varan er að mestu fjöldaframleidd í Kína; seld sem íslensk sé. 8. október 2015 09:30