Ábyrgðarmenn leystir undan láni systurinnar Nadine Guðrún Yaghi skrifar 1. september 2016 05:00 Landsbankinn gat ekki sýnt nein gögn sem staðfestu að greiðslumat hefði farið fram og voru ábyrgðarmenn leystir undan ábyrgð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „
Niðurstaðan var vel rökstudd og tel ég að það séu mörg svona mál þarna úti. Fólk verður að vera vakandi fyrir rétti sínum,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður ábyrgðarmanna sem leystir voru undan ábyrgð á láni systur sinnar á þriðjudag. Úrskurðarnefnd fjármálafyrirtækja ógilti ábyrgð þeirra á láni systur sinnar en lánið var tekið hjá Sparisjóði Hornafjarðar sem síðar rann inn í Landsbankann og var upphaflega upp á rúmar tvær milljónir. Ábyrgðarmennirnir, tvær systur lántakandans, voru krafðir um greiðslu í byrjun þessa árs. Í ljós kom að bankinn gat ekki lagt fram nein gögn sem staðfestu að greiðslumat hefði farið fram.Sævar Jónsson lögmaður.Samkvæmt regluverki sem var í gildi á þeim tíma var það skilyrði ábyrgðar að framkvæmt væri greiðslumat. Ábyrgðarmennirnir kærðu málið í framhaldi. „Í byrjun þessa árs vildu systurnar láta reyna á það hvort ábyrgðin væri í gildi. Þá kölluðum við eftir því hvort framkvæmt hefði verið greiðslumat en bankinn fann engin gögn því til staðfestingar og gat ekki sýnt fram á það með neinum hætti,“ segir Sævar. Að sögn Sævars sagði bankinn að honum bæri ekki skylda til að varðveita gögn í svo langan tíma. „Það má segja að þetta sé í fyrsta skipti sem banki er látinn bera hallann af því að geyma ekki gögn um greiðslumat.“ Úrskurðarnefndin taldi með vísan til nokkurra fordæma Hæstaréttar, að þótt fjármálafyrirtækjum beri ekki skylda til þess að varðveita gögn sem greiðslumat er byggt á til lengri tíma, yrði það hins vegar að geta sýnt fram á að slíkt mat hefði farið fram og á hvaða gögnum greiðslumatið hefði verið byggt. „Þetta gátu þeir ekki sýnt fram á. Þeir eru fagaðilar,“ segir Sævar. Niðurstaðan þýði að bankarnir verði að gæta sín betur þegar kemur að því að halda uppi skuldbindingum gagnvart ábyrgðarmönnum. „Og þeir verða að gæta þess að þeir geti sýnt fram á að farið hafi verið eftir reglum um greiðslumat,“ segir Sævar Þór Jónsson.Leiðrétting: Umrætt lán var ekki tekið í Landsbankanum árið 2007 heldur í Sparisjóði Hornafjarðar árið 1998. Sparisjóðurinn sameinaðist Sparisjóði Vestmannaeyja sem rann síðan inn í Landsbankann þar sem lánið liggur nú. Upphaflega lánsfjárhæðin var 2,3 milljónir. Lánið stendur hins vegar í 7 milljónum í dag.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira