Reykjanesbær verður við beiðni Gunnars Þórðarsonar og „Gamli bærinn minn“ ekki spilað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. september 2016 11:51 Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson. Vísir/GVA
Ljósanæturhátíðin í Reykjanesbæ var sett venju samkvæmt við Myllubakkaskóla í gærmorgun. Hátíðin stendur til sunnudags og kennir ýmissa grasa. Þá hefur vakið athygli ákvörðun Gunnars Þórðarsonar, eins dáðasta listamanns þjóðarinnar, að meina skipuleggjendum að spila lag hans „Gamli bærinn minn“ fyrir flugeldasýninguna á laugardagskvöldið. Hátíðin fer fram í 17. skipti en venju samkvæmt eru heimamenn í helstu aðalhlutverkum hvort sem við kemur tónlist, myndlist eða öðrum viðburðum. Heimatónleikar eru á sínum stað en einn af hápunktum Ljósanætur eru stórtónleikar á laugardagskvöldið með stórsveit Magnúsar Kjartanssonar en auk þess kemur Páll Óskar fram. Nánar um dagskrána hér. Flugeldasýningin verður með hefðbundnum hætti að því frátöldu að lag Gunnars Þórðarsonar, „Gamli bærinn minn“, verður ekki spilað í aðdraganda sýningarinnar. Gunnar sagði í tilkynningu í vikunni að ástæðuna mætti rekja til framkomu einnar af undirstofnunum Reykjanesbæjar við fjölskyldu sína. Gunnar segir í samtali við Vísi að skipuleggjendur ætli að virða ákvörðun hans og spila ekki lagið. Gunnar vill ekki tjá sig nánar um deilur fjölskyldu hans við bæinn. Valgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ljósanætur, vildi ekki tjá sig um málið í samtali við Vísi í gær.Hlusta má á „Gamli bærinn minn“ hér að neðan.
Tengdar fréttir Reykjanesbær er „ekki gamli bærinn minn“ Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson vill ekki að lag hans Gamli bærinn minn verði spilaður yfir flugeldasýningunni á Ljósanótt. 27. ágúst 2016 21:05 Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Fleiri fréttir Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Sjá meira
Reykjanesbær er „ekki gamli bærinn minn“ Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson vill ekki að lag hans Gamli bærinn minn verði spilaður yfir flugeldasýningunni á Ljósanótt. 27. ágúst 2016 21:05