„Mikilvæg kynjapólitísk aðgerð að konur standi saman“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. september 2016 18:00 Svandís Svavarsdóttir á Fundi fólksins í dag. vísir/eyþór
Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna segir mikilvægt að konur í stjórnmálum standi saman þvert á flokka. Þá segir hún það staðreynd að það sé talað öðruvísi um konur í stjórnmálum en karla og það sé meira úthald fyrir því þegar karlarnir fari út af brautinni heldur en þegar konur gera það. Þá er hún ekki sammála Ögmundi Jónassyni samflokksmanni sínum um það að stjórnmálakonur nýti sér neikvætt umtal til eigin upphafningar en þetta kom fram í viðtali við Svandísi á Fundi fólksins í dag. „Ögmundur orðaði þetta almennt eins og hann ætti við allar konur í stjórnmálum og það er auðvitað ekki þannig. Það er ekki bara veruleiki stjórnmálakvenna á Íslandi heldur um allan heim að við erum að glíma við kerfið sem er ekki sett saman af okkur eða fyrir okkur heldur er sett saman af valdakerfi sem gegnsýrt af kynjakerfinu þar sem karlar eru í raun og veru í forystu og kerfið er svona sniðið að þeim. Það þarf ekki meira en að horfa bara á þá staðreynd að konur endast mun skemur í stjórnmálum heldur en karlar og draga af því þá ályktun að það hlýtur að vera með einhverju móti þannig að kerfið sé konum óhagstætt. Að minnsta kosti væri það mjög skrýtin niðurstaða að telja að það væri eitthvað að öllum konum sem færu í pólitík,“ sagði Svandís. Hún sagði það alþekkt að karlasamstaða væri gegnumgangandi í samfélaginu öllu og að rannsóknir hefðu sýnt það að þegar konum fjölgi við borðið að þá hafi karlar tilhneigingu til að finna aðrar leiðir til að styðja hvern annan. Aðspurð hvort að konur á Alþingi stæðu saman og styddu hvor aðra sagði hún það vera allavega. „En ég held að það sé mikilvægt og ég hef talað fyrir því, að konur myndi bandalög þvert á flokka ekki bara efnisins vegna eða vegna þess að það sé mikilvægt fyrir málefnin heldur vegna þess að það er í sjálfu sér mikilvæg kynjapólitísk aðgerð að konur standi saman.“ Þá nefndi Svandís dæmi um kvennasamstöðu frá tíma sínum í borgarstjórn Reykjavíkur. „Ég man eftir verkefnum sem við höfum komið í gegn bara á grundvelli kvennasamstöðu í borgarstjórn Reykjavíkur til að mynda þegar við Hanna Birna gerðum um það bandalag önnur okkar var í meirihluta en hin í minnihluta og við komum okkur saman um það að ekki yrði leyfð klámráðstefna á Hótel Sögu. Það hefði ekki verið hægt ef við hefðum unnið það eftir venjulegum pólitískum línum og það endaði með fullu húsi í atkvæðagreiðslu í Ráðhúsi Reykjavíkur byggðist á kvennasamstöðu.“Viðtalið við Svandísi má sjá í spilaranum hér að neðan en það hefst þegar 4 klukkutímar og 42 mínútur eru liðnar af útsendingunni.
Tengdar fréttir Sigurður Ingi undrast illmælgi í garð Framsóknarflokksins Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra undrast það hversu illa sé talað um flokk sinn, Framsóknarflokkinn, í samfélaginu. 2. september 2016 14:06 Forsetinn spyr hvort ekki sé hægt að sameinast um ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands setti Fund fólksins klukkan 11 í morgun en hann fer fram í Norræna húsinu og tjaldbúðum sem reistar hafa verið í Vatnsmýrinni. 2. september 2016 12:16 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Sigurður Ingi undrast illmælgi í garð Framsóknarflokksins Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra undrast það hversu illa sé talað um flokk sinn, Framsóknarflokkinn, í samfélaginu. 2. september 2016 14:06
Forsetinn spyr hvort ekki sé hægt að sameinast um ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands setti Fund fólksins klukkan 11 í morgun en hann fer fram í Norræna húsinu og tjaldbúðum sem reistar hafa verið í Vatnsmýrinni. 2. september 2016 12:16