Jákvæð gagnvart ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 2. september 2016 18:47 Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra lagði fram á Alþingi í síðustu viku frumvarp til breytinga á stjórnarskrá. Vísir
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra lagði fram á Alþingi í síðustu viku frumvarp til breytinga á stjórnarskrá. Þar er lagt til að þrjár nýjar greinar bætist við stjórnarskrána, þ.e. um umhverfisvernd, náttúruauðlindir og þjóðaratkvæðagreiðslur að kröfu 15 prósenta kosningabærra manna.Einblína á afmarkaðan þátt Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ræddi meðal annars stjórnarskrárbreytingar í ávarpi sínu á fundi fólksins við Norræna húsið í morgun. „Sá ótti virðist líka ríkja að hóflegar breytingar núna útiloki róttækari skref síðar. Ágætu fundargestir. Hér hefur verið bent á þau sannindi að allir stjórnmálaflokkar vilja að kjósendur geti kallað fram þjóðaratkvæðagreiðslu um lög frá Alþingi,“ sagði Guðni. Þá vísaði Guðni til stjórnarskrárfrumvarps forsætisráðherra og sérstaklega til ákvæðis er varðar þjóðaratkvæðagreiðslur. „Kannski væri einmitt ráð að einblína núna á einn afmarkaðan þátt. Þá stjórnarbót sem lítur að beinu lýðræði og rétti fólks til að segja hug sinn milliliðalaust í mikilvægustu málum,“ sagði Guðni.Skoða með opnum hug Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist jákvæð fyrir þessari hugmynd. „Ég vil bara taka vel í þessa hvatningu og held að við ættum bara að skoða það með opnum huga hvort að við gætum lokið þinginu með því að samþykkja þetta ákvæði,“ segir Oddný. Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir flokkinn mjög jákvæðan gagnvart öllum tillögunum þremur. „Tillögurnar sem að stjórnarskrárnefndin skilaði til forsætisráðherra, þær voru samþykktar af fulltrúum allra flokka. Þannig að ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýnn þangað til annað kemur í ljós,“ segir Óttarr. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir þetta það ákvæði í frumvarpi forsætisráðherra sem auðveldast væri að ná samstöðu um. „Það hefur verið ágreiningur um þröskuldana í ákvæðinu. En ég held hins vegar að það sé mikil almenn samstaða um að það er mikil þörf á þessu ákvæði. Það hefur komið fram hér í þingsal og berlega fyrir forsetakosningar. Þannig að ég ætla ekkert að útiloka það að þetta sé möguleiki,“ segir Katrín.Andlýðræðislegur þröskuldur Samkvæmt frumvarpinu þurfa að minnsta kosti 25 prósent kosningabærra manna að synja lögum samþykkis, til þess að þau verði felld úr gildi. Og það er einmitt þessi þröskuldur sem kemur í veg fyrir að Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, geti samþykkt ákvæðið. „Hann er andlýðræðislegur. Hann er ekki bara ólýðræðislegur, hann er andlýðræðislegur. Hann dregur úr þátttöku. Hann hvetur til heimasetu. Hann gerir heimasetu að afstöðu. Og þá er hætt við því, eða við höfum allavega verulegar áhyggjur af því, að slíkt myndi bara vera mjög skaðlegt fyrir allt ferlið,“ segir Helgi. Þannig að þetta gæti ekki verið áfangasigur á þessari vegferð? „Ég allavega sé ekki að við getum útkljáð það á þeim tíma sem eftir er á þessu þingi,“ segir Helgi.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Fleiri fréttir Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum Sjá meira
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent