Tvær líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur í nótt Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2016 09:53 ögregla hafði afskipti af fjölda ökumanna vegna gruns um ölvun við akstur. Vísir/Pjetur
Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur í nótt. Í dagbók lögreglu segir að klukkan 2:10 hafi verið tilkynnt um líkamsárás í Lækjargötu þar sem ráðist hafði verið á ungan mann þar sem hann var tekinn hálstaki, kýldur ítrekað í andlitið og sparkað í hann. Árásarþolinn hugðist leita sér aðstoðar á slysadeild og hefur lögregla upplýsingar um geranda. Skömmu síðar var svo tilkynnt um líkamsárás í Bankastræti þar sem maður var sleginn í andlitið og er hann talinn nefbrotinn. Árásarmaðurinn handtekinn skömmu síðar og vistaður í fangageymslu. Lögregla þurfti einnig að hafa afskipti af ölvuðu erlendu pari sem er sagt hafa verið til vandræða í Austurstræti, en parið var vistað í fangageymslu á meðan ástand þeirra lagast. Skömmu fyrir miðnætti stöðvaði umferðardeild lögreglu bíl á Sæbraut við Súðarvog eftir að bifreiðin hafði verið mæld á 102 kílómetra hraða þar sem leyfður umferðarhraði er 60. „Ökumaðurinn reyndist sviptur ökuréttindum og hafði ekki öryggisbeltið spennt. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur en blés undir refsimörkum,“ segir í dagbók lögreglu. Lögregla hafði afskipti af fjölda ökumanna vegna gruns um ölvun við akstur, meðal annars í Stakkahrauni í gærkvöldi þar sem ökumaðurinn reyndist sviptur ökuréttindum. „Ökumaðurinn blés í öndunarsýnamæli lögreglu og sýndi mælirinn 4 prómill en refsimörk eru 0,5 próm. Ökumaðurinn var laus að lokinni sýnatöku en handtekinn skömmu síðar við Flatahraun þar sem hann lá ósjálfbjarga vegna ölvunar. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu meðan ástand hans lagast.“
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir „Kjör hafa ekki rýrnað“ Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Sjá meira