Starfsmaður Veitna lést eftir vinnuslys Birgir Olgeirsson skrifar 5. september 2016 12:11 Samverustund haldin með starfsfólki Orkuveitu Reykjavíkur í morgun. Vísir
Starfsmaður hjá Veitum sem lenti í alvarlegu vinnuslysi síðastliðinn föstudag er látinn. Veitur er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur en starfsfólki þar var tilkynnt um andlátið í morgun og var í kjölfarið haldin samverustund með presti.Trausti Klemenzson var rafvirki og hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur árið 1988. Hann var 62 ára gamall og lætur eftir sig tvo uppkomna syni.VísirMaðurinn hét Trausti Klemenzson. Hann var rafvirki og hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur árið 1988. Hann var 62 ára gamall og lætur eftir sig tvo uppkomna syni. Trausti var að vinna við tengingu heimtaugar í Úlfarsárdal. Hún átti að vera spennulaus en maðurinn virðist engu að síður hafa fengið straum og fór í hjartastopp. Sjúkrabíll var kallaður til ásamt lögreglu og var Vinnueftirlitinu og Mannvirkjastofnun gert viðvart. Hann var fluttur á Landspítala Íslands þar sem hann gekkst undir hjartaþræðingu og var þaðan fluttur á gjörgæsludeild þar sem hann var úrskurðaður látinn aðfaranótt laugardags. Vinnueftirlitið, Mannvirkjastofnun og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fara með rannsókn málsins en í tilkynningu frá OR kemur fram að þær upplýsingar sem Veitur hafa um atburðarásina benda til að starfsmenn fyrirtækisins hafi fylgt gildandi verklagi og strax nú um helgina var hafist handa við að fara yfir verklagið.
Tengdar fréttir Starfsmaður Veitna á gjörgæsludeild eftir alvarlegt vinnuslys Starfsmaður hjá Veitum, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, lenti í alvarlegu vinnuslysi í dag og liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. 2. september 2016 17:01 Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira
Starfsmaður Veitna á gjörgæsludeild eftir alvarlegt vinnuslys Starfsmaður hjá Veitum, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, lenti í alvarlegu vinnuslysi í dag og liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. 2. september 2016 17:01