Stjórn Karólínska vikið frá störfum

Sjúkrahúsið sér um að veita Nóbelsverðlaunin í læknisfræði, en ritari nóbelsverðlaunanefndarinnar hafði áður sagt af sér vegna málsins. Ljóst er að málið er högg á orðstýr sjúkrahússins en rektor Karólínska hefur einnig sagt af sér vegna málsins.
Macchiarini var rekinn í mars síðastliðnum þegar upp kom að hann hefði getið upp rangar upplýsingar á ferilskrá sinni og gerst sekur um vanrækslu eftir að tveir sjúklingar hans létust.
Yfirvöld í Svíþjóð rannsaka nú Macchiarini en hann liggur undir grun um alvarlega vanrækslu sem leiddi til dauða annars einstaklings. Hann hefur neitað allri sök.
Hneyksli rétta orðið
Helene Hellmark Knutsson, ráðherra menntamála og rannsókna í Svíþjóð sagði á blaðamannfundi að hneyksli væri rétta orðið yfir málið. „Fólk hefur orðið fyrir skaða vegna gjörða Karolinska stofnunarinnar og Karolinska sjúkrahússins,“ sagði Helene.
Ríkisstjórnin tilkynnti uppsagnirnar eftir að niðurstöður óháðrar rannsóknar voru kynntar. Þar sagði að stjórnin hefði sýnt „sláandi hlutleysi“ gagnvart miklu magni af neikvæðum umsögnun þegar Macchiarini var ráðinn.
Hellmark Knutsson sagði að rannsóknin leyddi í ljós að sjúkrahúsið hafi brotið lög og reglugerðir og hefði sýnt lögum og siðareglum vanvirðingu.
Verðlaunaféi verði ráðstafað til aðstandenda
Bo Risberg, fyrrum formaður siðanefndar Karólínska, hefur krafist þess að Nóbels verðlaunin í læknisfræði verði ekki veitt í tvö ár og að verðlaunafénu verði þess í stað ráðstafað til aðstandenda þeirra sjúklinga sem Macchiarini gerði aðgerðir á.
Macchiarini var ráðinn til Karólínska árið 2010 til að rannsaka stofnfrumumeðferðir. Læknarnir Tómas Guðbjartsson og Óskar Einarsson tóku þátt í einni aðgerð Macchiarini árið 2011 þegar Eritríumaðurinn Andemariam Beyene fékk ígræddan plastbarka með stofnfrumum. Tómas og Óskar hafa aðstoðað við rannsókn á barkaígræðslum Macchiarini.
Tengdar fréttir

Barkaígræðsla sögð siðferðislegt stórslys
Í bréfi Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands til heilbrigðisráðherra er talið mikilvægt að rannsaka þátt íslenskra stofnana í barkaígræðslumálinu svokallaða. Heilbrigðisráðherra vill að þingið skoði möguleika á rannsóknarnefn

Ítalski skurðlæknirinn lifði tvöföldu lífi
Saga Paolo Macchiarini er svo ótrúleg að hún hljómar eins og handrit að kvikmynd.

Yfirlýsing frá Tómasi Guðbjartssyni og Óskari Einarssyni
Óskar og Tómas segjast ekkert hafa komið að meðferð annarra barkaígræðslusjúklinga. Þeirra aðkoma að greininni sem birt var í læknariti hafi verið minniháttar.

Rektor Karolinska segir af sér vegna meints vísindalegs misferlis Macchiarini
Tveir íslenskir læknar komu að fyrstu gervibarkaígræðslu ítalska læknisins og núverandi landlæknir var að auki forstjóri Karolinska sjúkrahússins þegar aðgerðirnar voru gerðar.

Macchiarini skaðaði tiltrú fólks á sænskum læknarannsóknum samkvæmt óháðri rannsókn
Niðurstöður óháðrar rannsóknar um mál ítalska skurðlæknisins voru gerðar opinberar í dag

Barkaskurðlæknirinn rekinn frá Karólínska
Paolo Macchiarini hefur talsvert verið til umfjöllunar vegna plastbarkaígræðslna sinna.