Dæmdur í gæsluvarðhald vegna gruns um ítrekuð brot gegn mæðgum Birgir Olgeirsson skrifar 30. ágúst 2016 20:09 Maðurinn er ákærður fyrir grófar hótanir og kynferðislega áreitni. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í áframhaldandi gæsluvarðhald sem grunaður er um ítrekuð brot gegn eiginkonu sinni og stjúpdætrum sínum. Mun maðurinn sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, en þó ekki lengur en til fimmtudagsins 22. september næstkomandi. Manninum hafði áður verið gert að sæta nálgunarbanni en hann braut ítrekað gegn því. Hann var fyrst látinn sæta nálgunarbanni 7. mars síðastliðinn, aftur 4. apríl og svo 2. maí síðastliðinn. Þann 1. júní síðastliðinn hafði önnur af stjúpdætrum hans samband við lögreglu í miklu uppnámi og kvaðst hrædd um líf sitt. Hún var þá nýkomin til vinnu og sagði manninn hafa verið kominn með enn eitt símanúmerið og hafi verið að brjóta nálgunarbannið með því að senda henni líflátshótanir í smáskilaboðum. Skömmu síðar hafði hafði hin dóttirin samband við lögreglu frá heimili sínu og sagði manninn hafa sent henni hótanir úr nýju símanúmeri. Hann var handtekinn vegna þess og úrskurðaður í gæsluvarðhald 2. júní síðastliðinn. Í ákæruskjali er manninum gefið að sök að hafa ítrekað brotið gegn nálgunarbanni meðal annars með sendingu smáskilaboða sem innihalda grófar hótanir og kynferðislega áreitni í garð stjúpdætra sinna. Að mati ákæruvaldsins eru yfirgnæfandi líkur á því að maðurinn haldi áfram afbrotum gangi hann frjáls ferða sinna. Hann hafi sýnt einbeittan brotavilja og ekki látið af háttsemi sinni þrátt fyrir ítrekuð afskipti lögreglu og fyrirmæli þar um. Þá hafi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upplýst að ákærði hefur reynt að senda brotaþolum í málinu bréf en fangelsisyfirvöld sendu mæðgunum ekki bréfin heldur voru þau send til lögreglu.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira