Persónuvernd hóf athugun á því hvers vegna vegabréf frá Þjóðskrá týndust í pósti Birgir Olgeirsson skrifar 31. ágúst 2016 23:09 Þjóðskrá segir að ekki sé krafa í lögunum um að senda vegabréfin í ábyrgðarpósti. Þess vegna eru þau send í almennum pósti þar sem þau hafa týnst. Vísir/Pjetur
Persónuvernd hefur fyrirskipað Þjóðskrá Íslands að bæta öryggi við sendingu vegabréfa. Persónuvernd hóf athugun að eigin frumkvæði á verklagi Þjóðskrár Íslands við sendingar á vegabréfum í kjölfar ábendinga um að afgreidd vegabréf frá Þjóðskrá Íslands hefðu týnst í pósti og því ekki skilað sér til viðtakanda. Persónuvernd hóf bréfaskipti við Þjóðskrá Íslands vegna málsins 2. maí síðastliðinn þar sem óskað var svara hvers vegna svo væri að vegabréf væru að týnast í pósti. Þjóðskrá Íslands benti á að umsækjendur um vegabréf geti sjálfir valið hvernig þeir fái vegabréfin afhent, það er hvort þeir sæki þau eða fái þau send í pósti. Þjóðskrá tók fram í svari sínu að í lögum sé ekki gerð krafa um að vegabréf séu send í ábyrgðarpósti og miðað við fjárveitingar ríkisins til vegabréfaframleiðslu hafi ekki verið til fjármagn til kostnaðarmeiri útsendingarmáta en sendingar almennra bréfa. Benti Þjóðskrá Íslands á að útgefin vegabréf á síðasta ári hafi verið rúmlega 70.000.68 vegabréf týndust Í svari Þjóðskrár kom fram að af þeim 70.226 vegabréfum sem voru gefin út í fyrra hafi 68 vegabréf ekki skilað sér í pósti til umsækjenda, eða innan við 0,1 prósent útgefinna vegabréfa. Þjóðskrá bendir einnig á að samkvæmt lögum póstþjónustu telst póstsending vera í vörslu póstrekanda og á ábyrgð hans frá móttöku og þar til hún hefur verið afhent á ákvörðunarstað. Þjóðskrá Íslands tók fram að það sé ávallt val umsækjenda hvort hann fái vegabréf sitt sent í pósti eða sæki það sjálfur til sýslumanns eða viðeigandi stjórnvalds. Þjóðskrá Íslands hafi einnig hafið undirbúning þess að umsækjendur geti sótt vegabréf sín í afgreiðslu stofnunarinnar en hingað til hafi ekki verið heimilt að sækja vegabréf í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands nema greitt hafi verið hraðafgreiðslugjald. Einnig segir í bréfi Þjóðskrár Íslands að upplýsingar um fingraför einstaklings í vegabréfi sem finna megi á örflögu í vegabréfinu séu varin með dulritunaraðferðum í samræmi við regluverk Schengen-samstarfsins og reglugerð um vegabréf. Sérstaka heimild Þjóðskrár þurfi til að geta lesið fingraförin úr örgjörva vegabréfsins. Í íslensku vegabréfi komi fram hæð einstaklings og sé mynd af umsækjanda sýnileg. Sá sem hafi vegabréfið undir höndum geti einnig lesið stafræna útgáfu myndarinnar með þar til gerðum búnaði.Öryggi ekki nægilega tryggt Niðurstaða Persónuverndar í málinu var sú að öryggi persónuupplýsinga við útgáfu og sendingu vegabréfa hjá Þjóðskrá Íslands sé ekki nægilega tryggt með sendingu vegabréfa í almennum pósti. Er því lagt fyrir Þjóðskrá Íslands að skjalfesta hvernig öryggis og trúnaðar er gætt við meðferð persónuupplýsinga í tengslum við sendingu vegabréfa, með tilliti til þeirra annmarka sem leiddu til þess að persónuupplýsingar týndust í almennum bréfpósti. Þá skal Þjóðskrá Íslands upplýsa Persónuvernd fyrir 1. desember næstkomandi hvernig orðið hefur verið við framangreindum fyrirmælum. Sjá úrskurðinn hér.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira