Bauð níu ára dreng í Kópavogi upp í bíl á þeim forsendum að móðir hans hefði lent í umferðarslysi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2016 12:00 Drengurinn var á leiðinni í Snælandsskóla í morgun. Mynd af vef Já.is
Níu ára drengur á leiðinni í Snælandsskóla brást hárrétt við í morgun þegar ókunnugur maður á svörtum jepplingi náði af honum tali. Að sögn piltsins sagði hann honum að móðir drengsins hefði lent í umferðarslysi og bauð honum upp í bílinn. Drengurinn féll ekki fyrir tilraun mannsins, hljóp í skólann og tilkynnti málið til skólastjóra. „Hann stóð sig eins og hetja,“ segir Magnea Einarsdóttir, skólastjóri í Snælandsskóla. „Hann vissi hvað hann átti að gera.“ Magnea segir að haft hafi verið samband við móður drengsins um leið, svo lögregluna og loks var póstur sendur á foreldra allra barna í skólanum. Þá hafi kennarar farið yfir málið með nemendum sínum „án þess þó að búa til einhverja skelfingu á staðnum“ að sögn Magneu. Drengurinn segir að um svartan jeppling hafi verið að ræða en gat ekki gefið lýsingu á manninum því hann sá ekki almennilega framan í hann. Magnea segist ekki muna eftir sambærilegu dæmi í hverfinu undanfarin ár. Málið er á borði lögreglunnar í Kópavogi. Foreldrar eru hvattir til að minna börn sín á að fara aldrei upp í bíl með ókunnugum.
Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Fleiri fréttir Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Sjá meira